Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.12.1927, Page 5

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.12.1927, Page 5
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 3 Prá fjelaginu. I ) Fermingardrenírjahátíð lijelt unglingadeild- in miðvikudagskvöldið 9. nóv. Var öllum fenningardrengjum haustsins boðið. Allir fermingarfeðurnir hjeldu stuttar og fallegar ræður. Sveinn Þorkelsson gaf einsöng; einn- ig var upplestur. Hátíðafundinum var lokið kl. 10V4 °S var auðfundið á öllum að þeir þóttust hafa átt góða stund. Ií. F. U. Ií. hjelt líka hátíðafund fyrir ferm- ingarstúlkur og fór hann fram með líkum hætti. Hann var haldinn 4. nóv. Uiiglingadeildiii (U-D) i K. F. U. M. varð 19 ára gömul 25. nóv. Hún var stofnuð þann dag árið 1908 með 4 meðlimum. Nú eru með- limir hennar um 200. Það er margs að minn- ast, er litið er til baka yfir þetta skeið. Marg- ir eru þeir unglingar sem á þessum árum hafa tekið meiri eða minni þátt í lífi deild- arinnar. Margir af vorum góðu starfsmönn- um hafa fengið áhrif sín meðan þeir voru í U-D. Mikið hefur verið sáð af góðu sæði guðs orðs í U D, en eins og vant er að vera hef- ur sæðið fallið í fernskonar jarðveg og borið ávöxt þar eptir. Margir ávextir góðir hafa komið í ljós, en fleiri eru duldir; þar sem orðið virðist engan ávöxt hafa borið, liggja til þess margar orsakir, en stærsta orsökin er samt víst sú, að sáðmanninn hefur vant- að lag og leikni, og ekki lagt orðið nógu hiklaust og djarfmannlega fram fyrir hin ungu hjörtu. Margt hefur á hinum undanförnu árum verið gefið t.il menningar og almennrar fræðslu, söngur og hljóðfærasláttur, fyrir- lestrar og erindi um ýms fræðandi efni, upp lestur úrvals bókmenntarita. Rit sem ávalt hafa vakið athygli og aðsókn eru m. a. Mac- beth, Lear konungr.Manfred, og ýmsar merki- legar sögur; Junglebókin eptir Kipling, t. d. — Lika opt ýmislegt úr Eddunum og íslend- ingasögum og menn kvaddir til að lesa þær. Frá U-I) eru líka sprottnar ýmsar greinar fjelagsins t. d. Fótboltastarfið, sem fyrst átti upptök sín í U-D. Stundum hefur verið mikið aðstreymi ung- linga til U-D, en stundum líka fáskipaðir fundir. Hjer eins og annarsstaðar gengur hin ytri aðsókn í bylgjum. En frá öllum árum eru allt af einhverjir, sem lofa Guð fyrir veru sína í U-D. Vjer vonum að & þessu tuttugasta ári deild- arinnar, muni margir af meðlimum hennar færast í aukana til þess að veglegt geti orð- ið næsta afmæli 1928. Hugsi allir deildar- menn eptir því. U-D er nú.á sunnudagsfundum sínum að byrja á þátttöku sinni i alþjóðastarfi K. F. U. M., að kynna sjer líf Jesú með biblíu- lestrum eptir þeirri niðurröðun, sem færustu menn fjelagsins frá mörgum löndum hafa samið og samþykt var á síðasta stjórnar- fundi Alþjóðanefndarinnar í Généve í sumar. Brjef mjög vinsamlegt hefur U-D hjer fengið frá U-D í K. F. U. M. í Banská By- strica i Czechoslovakíu, og vilja unglingar þar fúsir kynnast Islandi og íslenzku þjóð- inni. Hafa einstakir piltar þar óskað eptir brjefasambandi við pilta hjer. Eru utn 14 piltar hjer og í U-D í Hafnarfirði komnir í það samband. Einnig hefur U-D sem lieild sent þeim þar brjef sameiginlegt frá deild- inni. Bærinn Banská Bystrica er dálítill bær í Slovakíu. í brjefi U D þar stendur þetta meðal annars: „Sá hluti lands vors, sem vjer eigum heirna í, er umkringdur af háum fjöllum, með djúp- um dölum, og renna strangar og stríðar ár eptir þeim. Slovakía var mjög lengi án sjálf- stæðis. í nær því 1000 ár vorum vjer ófrjáls- ir. En eptir heimsstríðið höfum vjer fengið sjálfstæði vort og ásamt bræðrum vorum Czechunum höfum vjer myndað vort nýja ríki, Czechoslovakíu.......K. F. U. M. starf- ar í landi voru í 12 bæjum og sýnist að eiga góða framtíð í vændum. — — Vjer höfum hjer mikinn áhuga á að kynnast lif- inu á landi yðar. I skólanum höfum vjer

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.