Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.12.1927, Síða 7

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.12.1927, Síða 7
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. 5 LlTLl LÁVARÐURINN EPTIR F. H. BURNETT 11. kap. Áhyggjumál í Ameríku. Eptir burtför Sedriks til Englands til að verða Fauntleroy lávarður fannst hr. Hobbs orðið tómlegt í kringum sig. Þegar hann hafði áttað sig á því að sjálft Atlantshafið lægi milli sín og litla vinar síng, er hafði stytt honum svo margar stundir, greip hann opt söknuður og hálfgert óyndi. Því var svo varið að hr. Ilobbs var ekki miklum gáfum gæddur, og alls ekki mannblendinn; hann var fremur dauflyndur og einrænn og átti fáa kunningja. Hann hafði ekki nóg sálarfjör til þess að finna upp á einhverju sjer til afþrey- ingar, enda gjörði hann sjer aldrei neitt til skemmtunar, nema að lesa blöðin og leggja saman dálkana í verzlunarbókum sínum. Það var nú heldur ekki allt af auðgjört fyrir hann, því hann var ekkert reikningshöfuð, og tók því reikningsfærsla hans opt langan tíma. Sedrik litli, sem var allleikinn í sam- lagningu bæði á fingrum sér og á spjaldi með grifflinum, hafði og stundum hjálpað honum talsvert; þar að auki var hann svo góður áheyrandi og hafði lifandi áhuga á því, sem hr. Ilobbs sagði honum úr blöðunum, og höfðu þeir opt haft heillangar samræður um landsins gagn og nauðsynjar; var því ekki að undra þótt hr. Hobbs fyndist ærið autt í búðinni eptir burtför drengsins. í fyrstunni gjörði hann sjer ekki glögga grein fyrir því að Sedrik væri í raun og veru svo fjarri, og gæti verið að hann kæmi aptur áður en nokk- urn grunaði; var eins og hann hálf byggist við að sjá Sedrik koma inn í búðardyrnar og standa þar í hvítu fötunum sínum og rauðu sokkunum, með stráhattinn aptur á hnakka og segja glaðlega: „Sælir hr. Hobbs! Heitt veður í dag; finnst þjer ekki?“ En eptir því sem dagamir liðu án þess að þetta kæmi fyrir, óx söknuður hans og eirðarleysi. Hon- um fannst heldur ekki eins gaman að blöð- unum og áður. Opt lagði hann blaðið niður í kjöltu sína eptir að hafa lesið í því um stund og sat svorog einblíndi á háa stólinn langan tíma. Það voru viss för á hinum löngu stólfótum, sem minntu hann á liðna daga. Það voru för eptir hælana á næsta jarlinum á Dorincourt, þegar hann hafði setið og barið fótastokkinn, meðan hann var að tala. Það ei svo að sjá að ung jarlsefni hafi til að berja hælunum í það sem þeir sitja á alveg eins og önnur ungviði; göfugt blóð og tignir ættbogar megna ekki að afstýra því. Eptir að hafa horft á för þessi um stund, var hr. Hobbs vanur að taka gullúrið upp úr vasa sínum og virða fyrir sjer áletrunina: „Til hr. Hobbs, frá elzta vini hans, Fauntleroy lá- varði. Er þetta þú sjer — mundu’ eptir mjer“. Og er hann svo hafði horft á það um hríð, var hann vanur að loka úrinu, svo að small í, og standa svo upp og fara út í búðardyrnar og horfa út á strætið. Á kvöld- iii eptir lokunartíma, kveikti hann stundum í pípu sinni og gekk hægt eptir götunni, þangað til hann kom að húsinu, þar sem Sedrik hafði átt heima; á því stóð lengi auglýsingarspjald: „Hús til leigu“. — Stóð hann þar lítið eitt við og reykti í ákafa og gekk heim aptur í daufu skapi. Svona liðu tvær eða þrjár vikur. Þá datt honum nýtt ráð í hug. Hann var aldrei snar- ráður og þurfti langan tíma til að átta sig á nýjum ráðum, enda var honum illa við ráðabrigði. En samt sem áður var þetta nýja ráð að brjótast um í heila hans, og er hann hafði ígrundað það nægilega lengi, og reykt mjög margar pípur yfir því, ásetti hann sjer að framkvæma það. Þetta nýja ráð var það að heimsækja Dikk. Sedrik hafði sagt honum mikið um hann og hafði honum nú dottið í hug að sjer mundi verða fróun í að tala við hann. Svo einn góðan veðurdag, þegar Dikk var í óða önn að bursta skó einhvers viðskipta- vinar, kom þangað lágur, gildvaxinn maður, bulduleitur og sköllóttur, og nam staðar á

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.