Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.03.1936, Blaðsíða 3
KFm
11. árg. Reykjavík, marz—maí 1936 3.-5. blað.
Þröngu dyrnar.
Lúk. 13, 24.
»Koi3tið ka.pps um að komast inn .um
þröng'u dyrnar; því að margir, segi ég yður,
munu leitast við a.ð komast inn og ekki geta. %
Þetta lætnr hræðilega illa í eyrum, og því
verðu.r ekki neitað, að Jesús var og er enn
að ýmsu leyti rnjög einskorðaður. Hann seg-
ir ekki aðeins, að fyrir hann einan verði menn
sáluJiclpnir, heldur og: »Jeg er vegurinn, jeg
er dyrnar,« og svo bætir hann því við, að
þessi eini vegur sje mjór vegur og mjög fáir
i-ati hann. Hann segir, að það sjeu aðeins
einar dyr, og; það sjeu þröngar dyr; — hann
segir einnig að margir muni leitast við að
komast inn, en geti það ekki.
Er þessi ræða u.m þröngu dyrnar ekki ot
alvarlegur og þungur boðskapur fyrir K. F.
U. M.? Eru ekki líkur til að hann verði frem-
u.r til að fæla. unga menn frá félagsskapn-
um, heldur en hitt? Við skulum nú sjá til!
1) Hvað eru þröngu dyrnar? Ekki vitum
vjei’, hvers vegna hann var spurður: »Eru
það fáir, sem hólpnir verða?« Vjer vitun>
ekki hvort ]>að var af forvitni eða af um-
hyggju fyrir eigin sálu., eða af drambsemi
eða af ráuhverulegri meðaumkun með hin-
um mörgu, sem ekki yrðu hólpnir. En hyerj-
a,r sem hvatirnar hafa verið, þá gefur Jesús
ekkert ákveðið svar við spurningu.nni, held-
ur leiðir hugann að því, sem hagkvæmast
va,r og þýðingarmest, með því að segja við
spyrjandann og þá um leið við alla þá, sem
enn í dag spyrja á sama. hátt: »Kostið kapps
um að komast inn um þröngu dyrnar.«
Hvað á þá Jesús við, með hinurn þröngu
dyrum? Dyrnar að ríki himnanna, þröngu.
dyrnar, sem enn þá standa. opnar, en ein-
.hverntíma verður lokað fyrir fullt og allt,
eru án efa Jesús sjálfur, sem frelsari vor og
staðgöngumaður — frelsari syndara með út-
breiddan kærleiksfaðminn, er býður öllum
ástúðlega: »Komið til mín allir«. Þröngu
dyrnar, það er hann sjálfur og hans frjálsa
óverðskuldaða náð. Það, að hann gjörði vorn
málstað að sínum málstað og negldi sku.lda-
brjef vort á krossinn, svo að vjer mættum
ganga frjálsir yfir frá þessum heimi inn í
gleði og friðarríkið hans. Boðskapurinn, orð-
ið um dauða hans og blóð, það er þröngu
dyrnar. Þessar dyr, náðardyrnar, standa öll-
um opnar, einnig hinu.m djúpt föllnu syn.d-
urum, ef þeir aðeins vilja sjálfir ganga inn
um þær.
2) En hvernig kemst maður þá inn um
þær? Það er víst ekki eins a.uðvelt að kom
a,st inn um þessar dyr og margir halda
»því að margir munu leitast við það og ekki