Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.03.1936, Blaðsíða 9
MANAÐARBLAÐ K. F. U. M.
15
þegar svonastæði á ein,s og' áður er sagt. Var
ekki annað að sjá en að Guð hefð'i sent hann
sem rjettan mann á rjettu.m tima. Stjórnin
afrjeð því að ráða hann sem aðstoða.rfram-
kvæmdastjóra. til eins árs fyrst um sinn, og
hefur hann nú stai-fað í þjónustu fjelagsins
síðan um miðjan .júní s. 1.
Fjárstyrkir:
Eins og flestum er kunnugt, stóðu Skógar-
menn K. F. U. M, fyrir landsmóti, sem haldið
var í Vatnaskógi síðastliðið vor, og var boðid
þangað allmörgum eldri og yngri meðlimum
fi'á K. F. U. Mj-fjelögum úti um land, auk
margra úr fjelaginu hjer. Petta varð mjög
mikilsvert mót og; gaf sýnilega blessunarrík-
an árangur. Skógarmönnum var ekki mögu-
legt að koma þessu í framkvæmd af eigin
ramleik vegna. kostnaðar og leituðu því til
stjórnarinnar um f járhagslegan styrk. Stjórn-
in taídi þessa tilraun svo mikilsverða að sjálf-
sagt væri að styðja hana og samþykkti ein-
róma að leg'gja fram kr. 235,00 úr fjelags-
sjóði og jafnstóra r-.pphæð af vöxtum síra
Friðrikssjóðs, svo að hægt væri að koma
þessu í framkvæmd.
Ennfremur veitti stjórnin Bókasafni fje-
lagsins nokku.rn fjárstyrk úr fjelagssjóði eins
og undanfarið.
Haustmarkaðurinn:
Þrátt fyrir vaxandi kreppu ákvað stjórnin
að halda Haustmarkað í Okt. eins og undan-
farin ár, því að hún áleit að engu væri tapaö,
en allt unnið, þó árangurinn kynni að verða
lítill. En það fór eins og áður, að markaður-
inn mætti einstökum velvilja. utanfjelags og
innan og gaf svo góðan árangur, sem reikn-
ingar fjelagsins bera með sjer, eða langt fram
yfir það, .sem nokkrum ha.fði til hugar komið
Megurn vjei' vera mjög- þakklátir þeim öll
um, bæði utan fjelags og innan, sem sti’ddu
að því með ráðum og dáð, að slíkur árangur
fjekkst.
Æskulýðs- og vakningavikur.
Þess telur stjórnin vert að geta. hjer, að
eftir alþjóðabænavikuna i Nóvember s. 1.
stofnaði aöstoðarsframkvæmidastjórinn i sam-
ráði við Úrval yngri deilda- til æskulýðsvikr
í fjelaginu með samkomu á hverju kvöldi, sem
voru mjög' fjölsóttar, Fór þar fram, fyrir-
lesti'ai' um ýmsa forvígismenn í æskulýðs-
hrevfingu vorri o. f 1., prjedikun og mikil!
söngur. Að þeirri viku lokinni var afráðið að
hajda áfram næstu viku, þar sem aðsóknin
jókst með hverjúm degi, en þá var samkom-
unum breytt í va.kningasamkomu.r, með vakr.-
ingaprjedikun, vitnisburðum, sambæn og
miklu.m söng eins og áður. Aðsóknin hjelzt
að kalla mátti hin sama og áður og' vöktu
þessar samkomur nýtt líf í báðu.m fjelögun-
um K. F. U. M. cg K., sem tóku þátt í þeim,
og ýmsir hinna yngri meðlima úr báðum fje-
lögunum öðluðust frið og fullvissu trúarinn-
ar og samfjelag við Frelsara. sinn fyrir þetta
stai'f. Vikur þessar enduðu með fjölmennri
altarisgöngu, í Dómkirkjunni. Eftir s. 1. nýár
hófust svo almennar samkomur á miðviku-
dögum með líku sniði cg vakningasamkom-
urnar og hjeldust þær fram til föstunnar.
Loks var aptur haldjn vakningavika nú í
byrjun þessa. mánaðar og A'oi'u þær samkom-
ur ágætlega sóttar eins og hinar fyrri. En
miðvikudaga samkomurnar voru nokkuð mið-
ur sóttar. Má fullyrða að bæði K. F. U. M. og
K. F. U. K. hlotnist mikil blessun af þess-
u.m samkomum einnig fyrir komandi tíma,
ef að meðlimirnir, einkum hjnir eldri þeirra,
skilja köllun sína í því, að hlúa að hinum
vaknandi gróðri og gjöra sjer far um að skilja
hann, og örfa eptir megni. Þó að þessi ný-
breytni, sem hjer hefur verið frá skýrt, geti
ekki talist starf stjórnarinnar beinlínis, þá
var hún framkvæmd með fullu samþykki
stjórnarinnar og stjórnin samþvkkti að greiða
þann kostnað sem af þessu leiddi fyrir fje-
lagið.
5 ta rfsgrein a rn a r:
Sumar af starfsgreinium þeim er teljast til
fjelagsins hafa sýnt allmikið tómlæti í því að