Tákn tímanna - 01.05.1920, Side 4

Tákn tímanna - 01.05.1920, Side 4
60 TÁKN TÍMANNA Yiðvörun. Æska, fegurð, fjör og blómi fölnar skjótt og lukkan flýr; lífsins gleði líkust hjómi, lánið heims í burtu snýr. Alt er synd og saurgun atað, sjást ei merki’ um hreinleikann; glæpa stígur geyst er troðinn Guð þó birti sannleikann. Ófriður í öllum löndum, engin ró í neinni borg, eigingirni’ og ilska magnast, alt er lamað böli’ og sorg. Æ, hvert stefnir að, menn spyrja, örvæntingin grípur þjóð, uppfylling á orðum Drottins alt er þetta, menn og fljóð. Heimur er í háska staddur, Herrann boðar syndagjöld, Drottins reiðidagur nálgast dimt er liðið heims á kvöld. Lögmálsbrotin lýðir magna, ljóst þó tali Drottins orð, aðvörunin enn þó hljómar allra til um haf og storð. Tilbiðjið þann hæsta herra himininn sem skóp og jörð! áfram hans á fótskör föllum fram með bæn og þakkargjörð. Eftir oklcur enn þá bíður ástrík náðin lausnarans getum við með gálaust sinni gengið fram hjá boðum hans. Hvert skal halda, hvað skal gjöra hvar er hjálp í neyð að fá? heimur ekkert hefur bjóða honum hverfa skulum frá. Jesús kallar: Komið! komið! kraft og hvíld að fá hjá mér. Ókeypis ég alt skal gefa, er til lífs má gagna þér. Orð hans er ó aumur maður eigi veizt þú blindur ert, berðu á þín augu sjúku augnasmyrsl þá sérðu bezt. Enginn fyrir Guði góðum getur heldur staðist ber hjá mér keyptu hvítu klæðin heyrðu hvað ég segi þér. Frelsarinn oss frið keypt hefur fallna menn með blóði sín, í hans ástararma flýðu aumstödd sál þá bölið dvin. Fyrirlít ei frelsun þína fyrst svo Drottinn elskar þig láttu blessað Ijósið skæra leiða þig frá villu stig. Þá er sannur friður fenginn farsæl vörn gegn böli og sorg, lítum svo til Ijóssins hæða, Iausnarans á helgu borg; hikum ekki hálfa stundu, hvað sem kostar því að ná. Ó, hve sælt um eilífð alla ætíð Guði dvelja hjá. M. G. Bolungarvík. »Því að eg vil að þér vitið, hversu mikilli baráttu eg á i vegna yðar. . . . og allra þeirra, sem ekki hafa séð mig persónulega, til þess að hjörtu þeirra, sameinuð í kærleika, mættu uppörfast og þeir öðlast gjörvalla auðlegð þeirrar sannfæringar, sem byggist á skilningi,

x

Tákn tímanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.