Tákn tímanna - 01.05.1920, Page 7

Tákn tímanna - 01.05.1920, Page 7
TÁKN TÍMANNA 63 kerrur, fjöruga hesta og fljótt sagt alt, sem þeir óska«. »Og þegar eg hefi keypt alt þetta, svo hvað?« sagði miljónamæringurinn. »Eg get aðeins horft á munina og mál- verkinu, og það getur hinn fátæki mað- ur, sem ekki er blindur, eins vel sem eg. Eg get ekki ferðast i hinum skemti- lega og þægilega vagni, en þér getið það án þess að hafa kúsk og þjón, og hvað þvi viðvíkur að hafa alt sem maður óskar, ungi maður, þá skal eg segja yður nokkuð, að þess minna sem maður óskar af þessum heimi, þess gæfusamari er hann. Fyrir öll mín auð- æfi get eg ekki fengiðj^keyptan " einn einasta dag til að framlengja lífi mínu, ekki keypt æskuárin til baka aftur, og að hvaða gagni kemurjalt þetta, þegar eg, eftir fá ár ligg í gröfinni^og verð að yfirgefa allan þennan auð? . Ungi maður! Þér hafið enga ástæðu til að öfunda mig«. Þessi vitnisburður miljónamæringsins er mjög lærdómsríkur, hið sama fann konungurinn Salomon: »Ög alt sem augu mín girntust lét eg þau hafa, eg neitaði hjarta mínu um engan fögnuð. Og sjá, það var alt hégómi og skapraun og það var mér enginn hagur undir sólunni. Hversu hugsunarlítið er það að safna sér auðæfa til áhyggju Á reynslunnar límum getur maðurinn ekki glatt sig við nærveru þessara gæða, og þegar auðæfiu eru virt fyrir sér, fær maður- inn ekki annað af þeim en þetla: fæði og klæðnað. Hversu mikið hugarstríð og hætta fylgir ekki oft auðnum, en því verndast þeir frá, sem neyta hins dag- lega brauðs með þakklæti og vegsama Guð dag frá degi. Guðhræðslan er hinn eini raunveru- legi auður, er gefur manninum ánægju og áhyggjulausa hugsun. Hún opnar augun fyrir fegurð og yndisleik þess er Guð hefir skapað, og veitir oss ollum að njóta hins sama takmarks. L.esið bibliuna. Þessi bók inniheldur hugarfar Guðs, ástand mannsins, veg bjálpræðisins, dóm syndaranna og sælu hinna hólpnu. Kenningar hennar eru heilagar, boðorð hennar skuldbindandi, sögur hennar eru sannar og ákvörðun hennar órjúfanleg. Leslu hana til þess að verða vitur, trúðu henni til að þú gelir verið ugg- laus og breyttu eftir henni til þess að verða heilagur. í henni er ljós til að lýsa þér, fæða til að næra þig og hugg- un til að uppörfa þig. Hún er landa- bréf ferðamannsins, stafur pílagrímsins, áttaviti siglingamannsins, sverð her- mannsins og hún er lundernismælikvarði hins kristna. í henni er Paradís endur- reist, himininn opnaður og hliðum hegn- ingarstaðarins lokað. Kristur er hinn skínandi miðdepill hennar, ráð hennar eru rituð oss til góðs og tilgangur henn- ar er að sýna oss dýrð Guðs. Hún ætti að fylla huga vorn, stjórna hjartans hugsunum og stýra gangi vorum. Lestu hana í hægðum þínum, lestu hana oft með innilegri bæn. Hún er auðug náma, skrautlegur aldingarður, ánægjulegt fljót. Hún er þér gefin í lífinu, hún verður opnuð í dóminum og hennar mun minst verða um alla eilífð. Hún hefir hina mestu ábyrgð í för með sér; en hún launar hinn þyngsta starfa og dæmir alla, sem fara léttúðlega með hennar heilaga innihald. »Þín hrísla og

x

Tákn tímanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.