Tákn tímanna - 01.05.1920, Side 6

Tákn tímanna - 01.05.1920, Side 6
62 TÁKN TÍMANNA Áður en við fórum þaðan, mynduð- um við svo, að venju S.-D. Aðventista- söfnuð með 22 meðlimum og fólum hann svo góðum Guði á hendur, sem við fulltreystum til að vernda og blessa og öflugan að gera þennan unga söfn- uð. En til þeirra, sem þar hafa nú »auðgast« af »sannfæringu þeirri, sem byggist á skilningi, þekkingunni á leynd- ardómi Guðs — Kristiff, vil eg aðeins segja þelta: »En hvað serii öðru líður, þá hagið safnaðarlífi yðar eins og sam- boðið er fagnaðarerindinu um Krist, til þess að hvort sem eg kem og sé yður, eða eg er fjarverandi, að eg þá fái að heyra um yður, að þér standið stöðugir i einum anda og berjist saman með einni sál fyrir trú fagnaðarerindisins, og látið í engu skelfast af mótstöðumönnunum. Fyrir þá er það merki um glötun þeirra, en um hjálpræði yðar, og það frá Guði, því að yður er sú náð veitt fyrir Krists sakir, ekki einungis að trúa á hann, heldur og að þola þjáningar hans vegna«. Fil. 1, 27—29. »Haldið fast víð orð lífs- ins, mér til hróss á degi Drottins vors Jesú Krists, að ekki hafi eg til ónýtis hlaupið«. »Eins og þér því hafið tekið á móti Kristi, Drotni Jesú, svo skuluð þér og lifa í honum, rólfestir og bygðir á honum, vera staðfastir í trúnni, eins og yður hefir verið kent, og skara fram úr í þakklátsemi. Gœtið þess, að enginn verði til að hertaka yður með heim- speki og hégómavillu, sem byggist á mannasetDÍngum, er runnið frá heims- vætlunum (völdunum), en ekki frá Kristi, því að i honum býr öll fylling Guðdómsins líkamlega«............wFetta segi eg, til þess að engin sviki yður með tœlandi orðum«. Kol. 2, 4—9. Öll þessi orð postulans, geri eg að mínum til ykkar, og sendi þar með ykkur og öll- um samhyggjendum fjær og nær, okkar kærustu kveðjur. Friður Guðs veri með ykkur öllum. Ykkar bróðir í sannleikanum. P. Sigurðsson. Engin ástæða til öfundar. wÞér eruð mikill gæfumaður«, sagði ungur maður við hinn ameríska milj- ónamæring Ridgewey. Og hversvegna haldið þér að eg geti verið gæfumaður, þar sem eg er öfund- aður fram yfir marga aðra? Eg sé enga ástæðu til þess«, svaraði miljónamær- ingurinn. »Hvað?« hrópaði hinn ungi maður hissa. Þér sem eruð miljónamæringur og hafið tekjur svo þúsundum skiftir á mánuði hverjum!« Segjum sem svo, en hvað er það í dýpsta skilningi?« svaraði Ridgewey. Alt sem eg fæ af því er fæði og klæðnaður, eg get ekki etið meira en einn maður, og ekki klætt mig nema einum klæðn- aði í hvert skifti. Má eg spyrja, munt þú ekki gera hið sama? Jú, eðlilega; en hugsið um öll þau fögru skrauthýsi, sem þér eigið, og allar þær tekjur, sem þetta færir yður«. »En hvaða ánægju hefi eg í raun og veru af þessu? Sjálfur hefi eg aðeins eitt hús er eg þarf að nota fyrir mig og tekjur mínar get eg hvorki etið eða borið með mér. Eg get aðeins notað þær til að kaupa ný hús, sem aðrir búa í, og þá verður ánægjan þeirra en ekki mín«. »En þér getið keypt þeim skrautlega húsmuni, fögur málferk, fallegar skemti-

x

Tákn tímanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.