Verði ljós - 01.02.1896, Síða 4

Verði ljós - 01.02.1896, Síða 4
20 lieitur; en eins og þú ert nú, hálfvolgur, hvorki heitur nje kaldur, mun jeg skirpa þjer út af mínum munni“. Ef til vill tekst hon- um að varðveita sitt tímanlega líf í heimsins augum — en hver gaf honum vonarbrjef fyrir hinu eilífa lífi? Ef til vill verður liinn trúi stríðsmaður Krists, hið ótrauða og ósjerhlífna sannleiksvitni að þola óvihl manna, sæta illu umtali, háði og fyrirlitningu, fara á mis við ýms af þægindum lífsins, já í vissum skilningi glata lífi sínu, en cinmitt sá hinn sami varðveitir líf sitt á degi roiðinnar og til lians munu þessi orð verða töluð: „Pú góði og trúlyndi þjónn, þú sem varst trúr yíir litlu, jeg mun setja þig yfir meira; gakk inn í fögnuð herra þíns“. Verið því hugrakkir, verið styrkir, allir þjer sem elskið hjálp- ræði Jesú Krists! G-angið óhræddir fram á orustuvöllinn og bcrið sannleikanum vitni, vitnið um hann, sem dó fyrir oss, vitnið svo að heimur heyri um hina óumræðilegu hæð og dýpt' guðs kærlcika í Kristó Jesú og vitið, að öilum sönnum Krists stríðsmönnum er „afsíðis lögð kóróna rjettlætisins11 og mun verða gefin þeim á hin- um inikla degi, þegar baráttunni er lokið og sigurinn unninn, því að þá mun það koma í ljós, hvcrjir hinna svokölluðu lærisveina Krists, ljetu það sjást í lífi sínu til orða og verka, að þoir mint- ust orða frelsarans: „Pjer skuluð og vitna —!“. J. H. Spurniiigiii niikla. Smápistlar frá gömlum presti. Útgcfuir af sjera Jóni Hdganyni. 2. Pistill. Guð blcssi þig fyrir brjefið þitt, Bergþór minn góður! Það var alveg eins og jeg gat búizt við því af þjer. Og guð blessi þig fyrir hin fögru umrnæli þín um mig, þau glöddu mig hjartan- lcga, af því að jcg veit, að þau eiga ekkert skylt við smjaður, þegar þau koma frá þjer. Þú skrifar: „Jeg liefi aldrei og mun aldrei efast um, að kenning þíu sje mál hjartans, að hún sje sprott- in af lifandi og óbifanlegri trúarsannfæringu“. Fegurri vitnisburð gat enginn gefið mjer en þennan, því að frá byrjun prestsskapar míns, hefi jeg álitið það vera cittlivað iiið voðalegasta, er hent getur nokkurn prest, að sóknarbörn hans efuðust um trú hans á það málefni, sem hann er að berjast fyrir. Jeg heyrði einu sinni

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.