Verði ljós - 01.02.1896, Síða 7

Verði ljós - 01.02.1896, Síða 7
23 heiininum, ef þeir óguðlegu Júðar hefðu ekki stytt honum aldur“; og svona munu fleiri en hann hafa prjedikað. Frelsarann Krist þektu þeir eigi eða brúkuðu það orð í alt annari merkingu en hin kristna kirkja alt til þessa dags hefir brúkað það. Nú er sjera Grímur fyrir löngu dauður, en skoðun hans á Kristi liftr enn og á sjer marga talsmcnn, meðal annara þig, Bergþór minn! En hvar sem hún kcmur fram, stendur hún í nánu sambandi við skort syncla- meðvitundar. Heilbrigðir þurfa ekld læknis við og sjálfbjarga menn ckki frelsara. En sje nú, Bergþór minn! eins og þú hyggur, öll þýðing Krists fyrir oss mennina fólgin í því, að hann gaf oss sinn dýrð- lega siðalæi’dóm, livað skal þá scgja um alt það, er Kristur scgir í trúardttina, um persónu sína og uppruna, um samband sitt við föðurinn á himnum annars vegar og við mennina hins vegar ? Hvort eru það orð í óráði töluð, er frelsarinn segir: „Jeg og faðirinn erum eitt“ (Jóh. 10, 30); „jeg er vegurinn, sannleikurinn og líflð, enginn kemur til föðursins ncma fyrir mig; — hver sem hefir sjeð mig, heflr sjeð föðurinn“ (Jóh. 14, 6. 9); „jeg er útgenginn frá föðurnum og kominn í heiminn“ (Jóh. 16, 28); „jóg er ljós heims- ins“ (Jóh. 8, 12); „mannsins sonur cr ckki kominn til þcss að láta þjóna sjer, heldur til þcss að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga“ (Matt. 20, 28); „alt er mjer af minum föður á vald geflð“ (Matt. 11, 27); „alt vald er mjer gefið á himni og jörðu“ (Matt. 28, 19); „ekki dæmir faðirinn neinn, heldur liciir hann selt syninum í hendur allan dóm, til þess að allir skuli heiðra soninn, cins og þeir heiðra föðurinn“ (Jóh. 5, 22. 23), — hvað eigum við, Bergþór minn! að segja um alla þessa ritningarstaði og marga fleiri, er allir eru talaðir í trúaráttina, cn snerta í sjálfu sjer als ekki siðalærdóm Krists? Jcg veit vél, að þeir eru til, er munu blátt áfram svara því, að Kristur hafi aldrei talað þessi orð, heldur liafi lærisveinar hans eða höfundar guðspjallanna lagt honum þessi orð í munn. En slílc staðhæfing dæmir sjálfa sig; því merkilegt mætti það heita, efþcir hefðu hcrmt rjctt frá öllu því, er Kristur segir með tilliti til siða- lærdómsins, en búið til alt það, sem hann segir þar um sjálfan sig í trúaráttina. Það þarf ekki mikinn speking til að sjá það, að slík staðliæfing cr hölt á báðum fótum. Hafi þeir, hrifnir af hinni dýrðlegu lcenningu meistarans, skýrt rjottilega frá öllu því, er þeir oigna lionum af siðferðilcgum sannindum, hvaða ástæða cr þá til að ætla, að þeir hafl farið að ljúga öllu hinu upp? Mjer cr

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.