Verði ljós - 01.02.1896, Page 9

Verði ljós - 01.02.1896, Page 9
25 speking? Getur slík breytni samrímzt við siðalærdóm Krists sjálfs? Jog hlýt að neita báðum þessum spurningum og hjarta mitfgjörir uppreisn á móti þeirri liugsun, að frelsarinn haíi neytt slíkra með- ala. Jesús er enginn Jesúíti; hin alræmda kenning Jcsúíta, að tilgangurinn helgi meðalið, er með öllu ósamrímileg við kenningu Krists. Þessi skoðun kollvarpar því með öllu hinni siðferðilegu einkunn frelsarans. Enginn siðferðilega góður maður gotur neytt jafn ósiðlegra meðala, því að hver sá, er noytir þeirra, sýnir mcð því og sannar, að hann sje sjálfur siðferðilcga spiltur. Sjerhvern þann mann, er neytti slíkra meðala, skreytti sjálfan sig upploginni tign, til þess að auka skoðunum sínum og kenningium gildi og álit, — sjerhvcrn þann mann mundum við á gamalli og góðri ís- lcnzku kalla svilcara. Þeir menn, sem dirfast að bcra Kristi slíka aðferð á brýn og verja leyfilegleik hennar, hljóta því sjálfir að bera spilt hjarta í brjósti. En slík aðferð hefði ekki aðeins verið ósiðleg, heldur einnig næsta bhyggileg. Hafi Kristur ekki átt annað erindi í heiminn en það að iiytja mönnum ný siðferðileg sannindi, hlýt jeg að segja, að hann hafi breytt mjög óhyggilega, er hann, til þess að gjöra siða- lærdórn sinn aðgengilegri og auka gildi hans, gaf það í skyn, að hann væri guðs sonur og ýmislegt annað í sambandi við það. Sem sannur spekingur hefði liann átt að sjá það fyrir, að slíkt mundi einungis verða til þess að vekja vantraust á sjer, vekja mótþróa gegn honum og þá einnig um leið kenningu hans, fæla menn frá honum í stað þess að laða mcnn að honum. Kristur stæði þá sem spekingur langt að baki Sókratesí og Zóróaster, Konfútiusi og Búdda, já mcira að segja að baki ringlaranum Múhameð, því að hann, sem annars svííist einkis til að gylla sjálfan sig, dirfist þó ekki að taka sjer æðri titil en þann að vera „spámaður hins æðsta guðs“. Hvervetna í guðspjöllunum sjáum vjer, að þessi staðhæfing Krists, að hann væri guðs sonur, vakti hneyksli manna, gjörði all- an þorra manna ómóttækilegan fyrir kenningu hans og varð þess valdandi, að margir þeirra, sem þegar höfðu slegizt í för með hon- um, yfirgáfu hann með öllu og fylgdu honum ekki framar (sbr. Jóh. 6, 60. 66). Loks hefir þessi staðhæfing, að Kristur liafi lagað sig eptir hugsunarhætti manna, til þess að gjöra þá móttækilegri fyrir siða- lærdóm sinn annarsvegar og auka gildi hans í augum þeirra liins vegar, söguna á móti sjer. Guöspjallasagan bcr þess miklu frem- ur ljósan vott, að Kristur hafi aldrei hlífzt við að ganga í berhögg

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.