Verði ljós - 01.07.1897, Blaðsíða 1
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGAN FRÓÐLEIK.
1897.
JÚLÍ.
7. BLAÐ.
Faðir vor.
(Matt. 6, 9—13).
Eptir prófast .“jera Valdimar Briem.
Þú faðir vor á himnahæð!
þig hver ein prísi lífsins æð.
Þitt helgist nafn í hvorjum stað,
þitt heilagt nafn sje vegsamað.
Þú faðir vor á himnahæð!
vor hjartasárin djúpu græð.
Oss allar sakir uppgef hjer
sem öðrum fyrirgefum vjer.
Þú faðir vor á himnahæð!
æ hjer á jörð þitt ríki glæð.
Það breiðist út um bæ og sveit
og blómgist vel í hverjum reit.
Þú faðir vor á himnahæð!
oss hclgum týgjum ljóssins væð,
svo vjer æ freisting verjumst gegn
og verði hún oss ei um megn.
Þú faðir vor á himnahæð!
um helgan vilja þinn oss fræð.
Þinn vilji jafnan verði’ á jörð
sem verður hann með englahjörð
Þú faðir vor á himnahæð!
öll hcimsins burtnem moinin skæð,
og öllu illu’ oss frclsa frá,
vor faðir góður himnum á. —
Þú faðir vor á himnahæð!
þín hjartkær börnin fæð og klæð.
Oss gef í dag vort daglegt brauð
og dag hvern bæt úr allri nauð.
Þú faðir vor á himnahæð!
oss himins dýpstum auði gæð;
því ríki’ og vald þitt cilíft er
og ævarandi dýrð hjá þjer.