Verði ljós - 01.11.1897, Blaðsíða 4

Verði ljós - 01.11.1897, Blaðsíða 4
1 164 boðum liins heilaga, sem vjer þekkjum og brýnum fyrir öðrum. — Það stoðar ekki, þótt vjer ineð sannfærandi og áhrifamiklum orðum væruin færir um að útlista annars vegar heilagleika og rjettlæti guðs, sem hefir andstygð á syndmni og lætur hegningima koma niður á þjónum liennar, og almætti hans og alstaðarnálægð, sem enginn megnar móti að standa eða fær dulizt fyrir, og hins vegar hans óumræðilega kærleika og misk- un, sem breiðir faðminn út móti hinum brotlegu og seku, og fúslega fyrirgefur sínum iðrandi börnum, þegar þau kannast við brot sin og af hjarta hryggjast af þeim og leita náðar f'yrir hans meðalgöngu og verð- skuldun, sem með sínu rjettlæti hefir bætt fyrir vort ranglæti, — þetta stoðar als ekkert, segijeg, ef vjer ekki fyrst og fremst höfum flutt slíka prjedikun fyrir sjálfum oss og megnað að sannfæra vort eigið lijarta og laga það og leiða eptir þeim sannleika, sein vjer vitnum um með orðum vorum og viljum innræta öðrum. Eða hvað mundi sá kennimaðúr vera annað en „hijómandi málmur og hvellandi bjalla“, sem með snjöllum og ströngum orðum beindi huga áheyrendanna að hinum helgu lögmálsboð- um og kröfum guðlegs rjettlætis, en sýndi í lífi sínu litla eða enga við- leitni til að breyta eptir þeim, — sem prjedikaði áheyrilega um fegurð dygðanua og viðurstygð syndar og lasta, en sýndi ekki í dagfari sínu neinn áhuga á því, að sneiða hjá hinum skaðvænlegu boðorðabrotum, en temja sjer þá manukosti, sem fegra og göfga lífið og gjöra það guði þóknanlegt? —- Hvernig mundi sá vera fær um að vísa öðrum veginn, sem rataði hann ekki sjálfur? Hvernig mundi sá geta vakið helgan áhuga á málefni guðsríkis, sem. sjálfur væri ósnortinn af áhrifum þess? Hvernig mundi sá geta glætt og nært hjá öðrum trúna og lcærleikann, sem hvorugt ætt.i, sem hvorugt hef’ði glætt og hært i sínu eigin brjósti? Og hvernig mundi sá geta talað sannfærandi orðum um sælan frið guðsbarna og um sælu friðþægðrar sálar, sem sjálfur hefði ekkert að segja afþess- um blessunarríku tilfinningum og þessum himneská fögnuði? Vissulega mundi enginn sannfærandi kraptur geta fylgt orðum hans, hversu rjett og áheyrileg sem þau annars kyunu að vera, og slíkur maður gæti ekki umflúið að falla undir þann óttalega dóm, að hann, sem kendi öðrum, yrði sjálfur rækur. Lifandi trú og sannur kristindómur í hjarta kenni- mannsins, stöðug árvekni og grandvarleikur i liegðun lians, — þetta era þá hin óumflýjanlegu skilyrði fyrir því, að verk hans geti borið heillavænlegan ávöxt, ekki einungis fyrir tillieyrendur hans, heldur og fyrir liann sjálfan. Hafi hann þetta huoss, þá hefir lianu þá auðlegð, að hann getur einnig auðgað aðra; þá lýsir honum það ljós, að hann getur kveykt ljós i aunarii sálum; þá vermist liann af þeim yl, að hann verður þess megnugur, að hrekja bm-t kulda van- trúar og kærleiksleysis hjá öðrum; þá ber hann þau kennsl á liinn rjetta veg, sem til lifsins liggur, að haun verður fær um að leiðbeiua öðrum \ ■ ’

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.