Verði ljós - 01.12.1898, Blaðsíða 2

Verði ljós - 01.12.1898, Blaðsíða 2
178 enn í dag ófriðarins heimkynni, eins og hún er syndarinnar heimkynni. Hún væri eun þá eingöngn bústaður hinna órósömu, friðarlausu hjartna, því að hjarta mannsins er órólegt þangað til það getur hvílst í guði, það er kvíðafult, sundurtætt og sundurflakandi, þangað til hann, sem er vor friður, fær tekið sér bústað í því og lækuað það. Vissulega er jörðiu enn bústaður kvíðandi og sundurflakandi lijartna, en húu er einnig bústaður friðarins, síðan guðs góði sou gjörðist maður og gróður- setti frið á jörðu. Hver þekkir ekki hið órósama, kvíðafulla kjarta, — hver þekkir ekki þennan þunghæra sjúkdóm, hjarta-sjiikdóm, sem lamar alt vort jn'ek til að starfa og stríða? Enginu er sá af konu fæddur, sem ekki hefir orðið hans var, og það spurðist aldrei hér á jörðu, að nokkur maður liefði nokkru sinni læknast af honum, sem ekki leitaði hins rétta læknis, þess lækuis, er getur numið burtu hinar eigiulegu orsakir hans. Því að ekki er Jæssi sjúkdómur fremur en aðrir sjúkdómar án orsaka. Eu mennirnir sjálfir þekkja oft eklci sjúkdómsorsakirnar, koma ekki auga á þær. Þess vegna eru þeir svo margir, sem verða að bera hann alla æfi, verða að mettast af andvörpum alla sína æfidaga og fá aldrei að bragða frið á jörðu. Aðrir finna að sönnu og jsekkja sjúkdómsorsök- iua, vita Jiað og skilja, að þessi órói hjartans og kvíði sálarinnar eiga rót sína að rekja til syndarinnar í heiminum og hjartanu, en þeim dett- ur ekki í hug, að neitt sé við því að gjöra, þeir vita ekki eða vilja ekki vita af því, að til er sá læknir, er hefir sagt: „Komið til mín allir — ég vil gefa yður hvíld“ — hann, sem gróðursetti friðinn á jörðu. „Ljósið skein í myrkrinu, en myrkrið meðtók það ekki“ — svo er euu fyrir fjölda manna; Jjess vegna geta þeir ekki losuað við kvíða hjartans og órósemi sálarinnar eða sungið með englum guðs um „frið á jörðul11 Eu þetta orsakast aftur af því, að þeir hafa aldrei opuað hjarta sitt fyrir hinni fyrstu jólaprédikun : „I dag er yður frelsari fæddur, sem er drottinn Kristur í horg Davíðs“. Þá fyrst er vér höfuin tileinkað oss 1 auðmjúkri trú innihald hennar og fundið hinn „inikla fögnuð“ i hjörtum vorum, — þegar guðs audi hefir fengið að vitna með vorum anda, að oss sé fæddur frelsari frá synd og dauða, að vér séum fyrir hann orðuir guðs elskuleg börn, þá byrjar lika batinn. Og að sama skapi sem vér leyfum konum, sem kom til þess að vera vor friður, að hreinsa oss af syndinni, hverfur og smámsaman órósemiu og kvíðinn, sem áður fylti hjartað, svo að vér ekki lengur mettumst af andvörpum, heldur af gleðisöugvum yfir þvi, að nú er „friður á jörðu“. Enginn af oss Jtarf að fara varhluta af þessari himnesku jólagjöf, hún stendur öllum jafnt til boða, sem að eins vilja þiggja hana. Sérhver ný jólahátið á að miniia oss á, að þessi jólagjöf stendur oss til boða, svo að vér geturn í drottins náðarnaíui fært oss hana í nyt,

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.