Verði ljós - 01.11.1900, Blaðsíða 13

Verði ljós - 01.11.1900, Blaðsíða 13
173 sagt alveg óbreyttur frá því Jónas Hallgrimsson var þar. Þegar eg skoðaði mig um, voru skólasveinar í einkeunisbúningi sínum að leikjum á víðum velli, girtum trjám á alla vegu, nema hvað opið var á einum stað út til vatnsins, eu í því hliði stendur Holberg gamli á háum palli og hefir ánægjuna af auði sínum. Mér fanst að hér. hlyti að vera yndi að lifa námsárin, og svo fór ég að hugsa um leiksvæðið austan við latíuuskólann heima með öskubyngjum og mykjuhaugum. Það var á laugardagskveldi sem ég kom til skólakennarans mins, og hafði ég því tækifæri til að vera að morgui við messu í sveita- kirkju. Ivirkjau var snotur steinkirkja, mjó og löng, og vísast var það þess vegna, að forsöngvarinn skálmaði upp og niður gólfið, og likt gerði reyndar presturinn, liaun var ekkert við altarið, nema þegar liann tónaði, annars gekk hann fram og aftur um kórinn meðan sungið var. Sárfátt var í kirkjuuni. Skólahúsið var allreisulegt, loftrúm og birta viðuuandi. Bústaður keunarans var góður og laglegt en lítið jarðnæði fylgdi embættinu, en kjör þessa alþýðukennara munu vera betri en alment gerist. Miust brestur á að húsaröðin sé óslitin með Eyrarsundi allar götur norður að Helsingjaeyri, og enda góðan kipp lengra norður, og nú eru komin upp skrauthýsi tvö fyrir sumargesti norður undir Gilbjærg, sem er nyrzti oddi Sjálands, í fiskiþorpinu Gilleleje. Þangað fór eg bæði til að heimsækja íslandsvininn Eeilberg, er býr skamt þaðau, og til að vera samau við skólabróður minn, Olaf skrifstofustjóra Halldórsson. Eg get skilið, að Islendingur kunni vel við sig þar uorður frá. Norð- urhluti sjóndeildarhringsins er opið haf, og lokar Kullen í Svíþjóð fyrir til liægri handar, betri en ekki í fjallalausu landi, 600 feta hár, að mig minnir. Lítið er þar um akra og enn minna um skóg uppi á' þessum sandbörðum; nú er byrjað að rækta þar furu og greui, sem eflaust tekst, bai'a að útverðirnir standa bognir og sviðuir af hafvindiuum. Það sem i bili dregur mest er fjaran með hvítum sandi og tærum sjó, sem ekki er að hafa nálægt stórbæjunum. Dagana, sem ég var þar, höfðu Finnar bezt sótt verið ; reyudar voru það kouurnar, sem einkum reru þessa sumarvertíð. Og minst tvisvar á dag fór alt fólkið úr sokk- unum og skónum og liélt upp um sig og sullaði í vatninu, eins og við gerðum krakkarnir við lambasetuna á hólmunum, þegar áin liljóp í skurðina seiuni partinn. Ekki man ég hvað liún hét finska frúin, sem mest talaði við mig og spurði mig svo rækilega, og um leið svo greindarlega, um lands- háttu og >stjórnarfar hér heimaj húu var sýnilega að glöggva sig á sam- anburði milli landanna, euda komst liún út úr þvi í að tala um Einn- land, og tárin komu fram i auguu, þogar hún ýfði það sár. (Niðurl.) Þórhallur Bjarnarson.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.