Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Page 8

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Page 8
224 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. við öldustokkinn á strandaða skipinu — sá hana fara ofan í bátinn undantölulaust að hon- um virtist — sá upprétta arma til þess að taka á móti henni, og hana rétta út armana á móli hjálp þeirri, er henni bauðst — gat þetta ver- ið Klara? Hvar var nú öll nauðungin, og öll mótstaðan, sem honum fanst hún ætti að sýna, eins og þá stóð á? Hann æstist upp af tilfinn- ingum, sem hann reyndi ekkert að átta sig á, grýtti frá sér kíkinum, greip sverð sitt og stökk út í bátinn sem Iá þar fullmannaður og ferð- búinn við skipshliðina. Hinum bauð hann að koma á eftir sér. I þetta eina sinn á ævinni fanst honnm sér.fallast hugur, er hann lagði á móti óvinum sínum. — Kaldur hrollur fór um hann allan, er hann mintist þess, hvað sið- gæðishugmyndir og sómatilfinning eru daufar meðal víkinga, og honum datt margt ljótt í hug. Meðan róið var til Iands stóð hann uppréttur á afturpalli bátsins, fölur sem nár með augun æðisleg og varirnar titrandi — hann var svo æstur, að hann hefði varla þolað það, hefði ekki hefniþráin haldið honum saman. Hann kreisti utan uin meðalkaflann á sverði sínu, en ofsinn í hjartaslætti hans og æðaslætti endurkvað alt af efnið í hugsunum hans, blóð, blóð, blóð! Hann kom nú nær litlu víkinni, og sá að kvenmaður stóð við hellismunnann — nær og nær henni kom hann — hann sá að þetta var Klara — nafn liennar iðaði á vörum hans, þá heyrði hann skotin, sem Hawkhurst skaut, ríða hvort á fætur öðru — hann sá Fransiskó riða við og detta —-og— nei— það var óþol- andi sjón — hann sá Klöru hlaupa fram — hann sá þenna unga mann halla höfði sínu í kjöltu hennar, meðan hún hélt honum hálf- uppréttum — mátti hann trúa sínum eigin aug- unt? gat það verið, að þetta væri unnusta hans? Jú, þarna sat hún og hallaði upp að sér ung- um og fallegum manni, — og það víkingi —hún fór þarna inn í barnt hans, og sat þarna yfir honum rneð angist og kvíða; og var að reyna að kalla hann til Iífsins aftur. Eðvarð þoldi ekki að horfa lengur á þetta, hann hélt hönd fyrir augu, og æpti með þrumandi röddu, ut- an við sig af afbrýði: «Herðið ykkur, piltar, f guðanna bænum herðið ykkur.» Báturinn var tæpast 10 áratog frá landi; Klara hafði í grandleysi tekið böggulinn, sem Fransiskó geymdi í barmi sínum, en þá kom Hawkhurst fram á bak við klappirnar, sem voru á milli voganna. Fransiskó var búinn að ná andanum, og þegar hann sá Hawkhurst koma nær, spratt hann upp, og ætlaði að þrífa til byssu sinnar; en áður en honum hepnaðistað ná í hana var Hawkhurst búinn að ná tökum á honum, og urðu þegar úr því voðaleg áflog. Pað hefði nú ekki Iiðið á löngu áður en Hawk- hurst hefði þar borið hærra hlut, því að Hawk- hurst var fílefldur kraftamaður; hafði hann kúg- að Fransiskó flatan, og látið kné fylgja kviði, og hafði snúið hálsklútnum svo um háls hon- um, að hann var rétt kominn að köfnun. Klara æpti og hljóðaði sem af tók og reyndi að bola Hawkhurst frá honum. Fransiskó var farinn að blána í andliti, og kominn vel á veg með að hengjast; Klara æpti um náð og miskunsemi, því að hún hafði enga krafta til að bjarga hon- um; á meðan rann báturinn upp í fjöruna, og Eðvarð stökk í land og réðist á Hawkhurst eins og ólmasti tígur, slengdi honum flötum aftur á bak, særði hann í úlnliðinn með sverði sínu, svo að hann mátti til að sleppa heng- ingartakinu á Fransiskó, og fór að hugsa um að verja sjálfan sig. «Takið hann, drengir* sagði Eðvarð og og benti á Hawkhurst með vinstri hendi, en á Fransiskó benti hann með sverði sínu og sagði beisklega: sRessi maður er minn fangi.» En Iivað svo sem hann hefir haft í huga, þá kom hann því ekki fram, því að Klara þekti hann þegar og hindraði hann. «Eðvarð, elsku Eðvarð» æpti hún, fleygði sér í fang honum og féll þegar í ómegin. Hásetarnir, sem höfðu tekið Hawkhurst, gláptu steinhissa á þessar aðfarir — Eðvarð beið þess með talsvert blendnum tilfinningum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.