Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1907, Síða 12
228 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. af snoturri íbúð hérna í grendinni, og þangað verðið þér að flytja innan tveggja stunda. Far- ið þér nú að Iáta niður, eg kem svo aftur inn- an stundar með vagn og flutningsmenn, og þá gengur það alt í flugaferðinni. Húsbóndinn ætlar að strika út það, sem eftir er ógoldið af leigunni.» Ekkjan tók í hönd Klemm með þakklæti. «Hvað ætli hefði orðið um mig, ef þess- ir góðu menn hefðu ekki tekið mig að sér?« «Ekkert er svo ilt að það geti ekki verið verra,» hélt Klemm áfram; en nú er um að gera, að búa uin húsgögnin, flytja dótið —eg kem innan stundar aftur.» Hann stökk út í skyndi og ekkjan fór þeg- ar að búa um dót sitt. Þetta starf! Hvert sem hún leit, á hverju sem hún snerti, varð það til þess að minna hana á eiginmann sinn og barnið. Hvernig, sem hún barðist í móti, vanmegnaðist hún samt um síðir af sorginni og hneig grátandi niður í miðjum byngnum, er hún var að laga. Ætli auðmaðurinn í Magdeborg hefði kent í brjósti um einstæðinginn, ekkju sonar síns, ef hann hefði séð hana liggja þarna yfirkomna af harmi? Varla! Að líkindum hefði honum fundist henni þetta mátulegt og skoðað þján- ingar hennar eins og refsingu af himnum ofan. Svona stóð nú á, þegar Klemm kom aftur með tvo sterka menn, sem áttu að bera fjár- muni ekkjunnar út í vagninn. Ekkjan blygðaðist sín fyrir, að láta menn þessa sjá að hún bæri sig illa, þurkaði af sér tárin, og bar sig vel úr því. Verkamennirnir tóku dótið og báru það út. Ekkjan horfði þög- ul á þá á meðan. Klemm sagði mönnunum fyrir um flutn- inginn, tók leigusamninginn upp úr vasa sín- nm og rétti frú Neumann hann. »Viljið þér gera svo vel og skrifa und- ir samninginn? Jeg skal koma honum í lag og þér þurfið ekki að hafa neina áhyggju út af honum». Ekkjan skrifaði nafn sitt undir leigusamning þenna, sem hún hafði aldrei lesið. «Herra Klemm, mér þætti vænt um, ef þér vilduð sjá um flutninginn héðan úr stofunni, svo að eg gæti þakkað ríkisráðinu fy-ir, áður en eg fer héðan.» «Húsbóndinn er einmitt að borða morguu- verð núna, og þá er hann í bezta skapi.« Svo fór ekkjan út úr herberginu, þar sem hún hafði þolað svo margt mótdrægt og felt margt tár, og kom þar aldrei framar. Hún mætti nýju leigjendunum í stiganum. Fölur maður og föl kona gengu þegjandi fram hjá henni; að Iíkindum vonuðu þau að þar mundi þeim líða betur, en þar, sem þau bjuggu áð- ur. Rau væntu þess um stofuna þar, sem gólf- fjalirnar voru enn þá votar af tárum ekkjunn- ar grátþrungnu. Hún gekk þegjandi niður fjóra stiga í bak- hýsinu. Engar dyr voru þar opnar og ekkert vinarandlit heilsaði henni. Þeir eru ekki svo nærgætnir, nábúarnir í bakhýsunum i Berlínar- borg. Hún hringdi bjöllunni hjá húsbóndanum með hálfum huga. Stofustúlkan opnaði og leiddi hana inn í herbergi ríkisráðsins. «Eg er nú að fara, og kom til þess að að þakka yður fyrir» byrjaði hún vandræðalega. »Frú Neumann, gerið migekki feiminn með öllu þessu þakklæti,« svaraði hann brosandi. »Rað er annars ágætt, að eg gat talað viðyð- ur, Eg fékk í dag dálítið óljóst spjaldbréf frá Magdeborg, en eg þykist samt ráða af því að tengdafaðir yðar ætli að heimsækja mig í dag. Mér virðist eitthvað skrítið við þessa heimsókn, því að eg er hræddur um, að tengda- faðir yðar hafi Iíka ætlað að heimsækja yður. Hver veit nema honum detti alt í einu í hug að sjá sonarson sinn?» »Eftir því sem eg þekki tengdaföður minn,» svaraði frú Neumann, »þá er engin hætta á því.« »Eg get ekki reitt mig á það. En verði það sem verða vill, í dag og á morgun megið þér ekki tala við tengdaföður yðar.« «Eg vildi síður hleypa honum inn fyrir

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.