Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Blaðsíða 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 245 agt fram og hvaða votta get eg kvatt mér, nema þá, sem standa hérna við grindurnar hjá mér, og þeirra vitnisburður er ógildur? Get eg kallað framliðna af gröfum fram? Get eg búizt vlð. að þeir, sem myrtir hafa verið, rísi upp aftur til þess að sanna sakleysi mitt? Get eg búist við að Don Kumanos taki sig upp, og komi hingað langar leiðir til þess, að bera vitni fyrir mig? Æ, hann veit ekki, hvernig nú er ástatt fyrir mér, annars hefði hann hraðað ferð sinni hingað, til þess að hjálpa mér. — Og eg get ekki svo mikið sem vænst þess, að hin elskulega, spánska mær komi fram á slík- um stað og þessum, til þess að verða að augna- skoti margra hundraða ófeilinna,starandimanna.» «Hún er hér,» svaraði karlmannsrödd, og rúm var rutt í gegnum mannþyrpinguna. Eð- varð Templemóre kom fram, klæddur einkenn- ■sbúningi sjóforingja og leiddi Klöru inn á vottabekkinn. Rað varð þytur mikill, þegar ■nærin kom þarna fram, og horfði í kringum s'g, hrædd og feimin. Undir eins og hún var húin að ná sér, var hún látin vinna eið, síð- að bar hún fram sinn vitnisburð um atferli og breytni Fransiskó, á meðan hún var á »Hefn- aranum,» og staðfesti þannig nokkuð af vörn hans. Hún hældi hjartagæzku hans og göfug- 'yndi, og þegar hún var búin að tala út, sagði margur við sjálfan sig: «Getur verið að þessi unglingur sé víkingur og morðvargur?« og svarið varo jafnan; «Nei það er óhugsandi.» »Lávarður minn» sagði Eðvarð Templemóre, *eg bið leyfis að mega leggja eina spnrningu fynrákærða. Regar eg var út í flakinu af «Hefn- aranum» fann eg þessa bók á floti í káet- unni. Eg viiHi feginn spyrja kærða, hvort hann á hana, eins og þessi unga kona segir.» ^feð þessum orðum lagði Eðvarð Templemóre hiflíuna fram. *Eg á hana» 'svaraði Franslskó. «Má eg spyrja hvernig þér eignuðust hana.« »Það er eini arfurinn eftir konu, sem nú ei ekki á lífi. Hún var einkahuggun móður minnar, er drepin var —síðan hefir hún líka örðið mér til hugsvöiunar. Fáið inér hana, herra, það eru öll líkindi á að eg þurfi henn- ar nú með fremur en nokkuru sinni áður.« «Var móðir yðar drepin, segið þér það?« sagði Eðvarð Templemóre með mikilli geðs- hræringu. ^Rað var eg búinn að segja áður, og tek það aftur upp nú.» Dómarinn stóð nú upp, og hafði efnið úr vitnaframburðinum upp í stuttu máli fyrir kvið- dómendunum. Rótt hann væri auðsælega með- mæltur Fransiskó, varð hann þó skyldu sinnar vegna að brýna það fyrir dómurunum, að vitn- isburður meyjarinnar hefði að vísu komið með ýmislegt, sem gæti orðið honum til málsbóta, svo að hann mundi leggja málið undir kon- ungsdóm, í von um, að hann mundi afmá dauða- dóm hans; en á hinn bóginn hefði ákærði ver- ið við margt riðinn, sem hefði haft lífshættu fyrir hann í för með sér, og engar sannanir væru fram komnar fyrir því, að hann hefði ekki áður fyr verið í verki með ræningjum, þó hann kunni að hafa iðrast eftir það síðar. Reir sæju það sjálfir aftur á móti, að vitnaframburð- ur Hawkhursts stýrimanns væri gersamlega þýð- ingarlaus, og þeir skyldu ekki láta hann neitt, á sig fá, að því er Fransiskó snerti. En aftur neyddist hann til þess, skyldu sinnar vegna, að taka það fram, að vitnisburður spánsku stúlkunnar væri að því leyti á móti ákærða, að hann sýndi að dátt hefði verið með þeim, kapteininum og honum; hve mjög sem hann því tæki þátt í kjörum ákærða, yrði hann samt, þó nauðugur væri, að minna kviðinn á, að vitnaframburðurinn væri alls ónógur til þess, að sýkna fangann, og hann áliti það þvískyldu þeirra að dœma þá alla seka, er fyrir grind- unum stceðu. «Lávarður minn,>- sagði Eðvarð Temple- móre, þegar dómarinn var seztur niður,« skyldi innihald bögguls þessa, sem eg hefi ekki dirfst að brjóta innsiglið á, geta leitt eitthvað það í Ijós, er gæti stutt sýknu hins ákærða? Finst yður nokkuð á móti því, að opna hann, áður en kviðurinn kveður upp dóm sinn?»

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.