Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Page 8

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Page 8
248 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Kain byltist ofan á gólfið; það varð ys og uppþot í dómssalnum. Hawkhurst var tekinn og bundinn, og Kain tekinn upp af gólfinu. »r*akka þér fyrir Hawkhurst« sagði Kain með dauðalegri röddu, »nú hefir þú einu morði fleira en áður að bera ábyrgð á, og þú hefir leyst mig frá skömm, ekki þeirri að verða hengd- ur, heldur þeirri, að verða hengdur með þér. Fransiskó, vertu sæll, drengur minn.« Svo tók hann djúpt andvarp og dó. Pannig dó þessi nafntogaði, alræmdi víkinga- foringi, sem hafði úthelt svo miklu blóði — og sjálfur dó seinast fyrir manndrápshendi. —Blóð fyrir blóð! Líkið var borið burtu, og nú var ekkert annað eftir en kviðdómendurnir kvæði upp dóm sinn. Allir hinir ákærðu voru dæmdir sekir, nema Fransiskó; hann gekk út úr dóins- salnum samferða hinum nýfundna bróður sínum, samglöddust honum allir með handabandi, sem til hans gátu náð. (Framh.) Seint og síðar. ----- (Framh.) Pær tókust í hendur. Ungfrúin drakk súkku- laðibolla hjá húsmóðurinni, en svo leiddi Eð- mund hana við hönd sér þaðan eftir Leipzig- argötu. Ungfrúin ætlaði að kaupa um leið bönd og kniplinga. En á leiðinni bar fyrir þau margt til að skoða og dást að, svo að það fór fyrir henni, eins og mörgum öðrum, að hún gleymdi aðalerindinu og mundi ekki eftir því fyr en hún var komin á járnbrautarstöðina, og beið eftir lestinni, er átti að fara til Magdeborgar. «Eg hefi steingleymt að kaupa það sem eg ætlaði, góði Eðmund; að þú skyldir nú ekki minna mig á það.« «Eg hafði ekki hugmynd um það.» «Mig minnir þó, að eg væri eitthvað að tala um það. Jæja, það verður ekki gert að því, eg má ekki sleppa lestinni. Fáðu mér vasabók- ina þína, eg ætla að skrifa það sem mig vant- ar. Þú getur valið það rétta, það er ekkert um að villast. En mundu mig um það að fara í beztu búð.» Eðmund fjekk frænku sinni vasabókina, hún skrifaði á eitt blaðið, reif það úr og rétti honum. Ef þú afhendir þetta blað, færðu það, sem þú æskir eftir.» «F*að er ágætt frænka, eg skal gera það nú þegar.« Eðmund kvaddi frænku sína og fór inn í Friðriksgötu, til þess að afljúka erindinu. Nálægt Leipzigargötu rakst hann á skraut- sölubúð með mjög stórum sýnisgluggum. Auð- séð var að alt var þar ríkulegt og vel uin geng- ið. Úti í gluggunum var snyrtilega raðað bæði kniplingum, böndum og höttum. Á gluggarúðunum stóð letrað með gyltum stöfum verzlunarmerkið: Frú F. Neumann, ekkja. Eðmund fór inn í búðina. Skeggjaður dyravörður í dökkum einkenn- isbúningi opnaði fyrir honum og bauð hon- um að setjast á fjaðrastól. Hann settist niður eins og í leiðslu, og dáðist að því, hve mikið og fallegt var að sjá í búðinni. Pað tók naumast nokkur eftir honum. All- margir kvenmenn stóðu við búðarborðið og skröfuðu hljótt við búðarstúlkurnar. Rær voru að dást að höttuin, kniplingum, og öðru þess- háttar. Auðheyrt var, að þær voru úr æðstu stéttum, því að stundum heyrðist sagt frú furst- inna eða frú greifinna. Nálægt Eðmund, frammi undir dyrum, var snotur glerskápur og stóð á honum «Peningar». Öldruð kona sat þar og var að telja gull- peninga. Loksins var kvenfólkið búið. «Herra minn, hvað þóknast yður?» sagði ung stúlka við Eðrnund. Hann stóð upp, gekk að búðarborðinu, tók upp blað frænku sinnar og afhenti það. Stúlk- an var ótrúlega fljót að ná því ölltt, mæla það og vefja það innan í silkipappír. Svo var Eð- mund fenginn dálítill miði af rauðum silkipapp* ír, sem talan 80 stóð skrifuð á, og bent að fara að peningaskápnum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.