Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 10
250 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ar hann að mæ!a með einhverju nýbrigði, eða hefir hann enn þá einu sinni átt við alt ann- að en það, sem stendur í bréfunum frá hon- um ?« Frú Neumann gekk ósjálfrátt eitt skref á hlið og horfði á báða þessa uppvaxandi ung- linga, og þegar hún leit framan í Eðmund, og tók eftir því, að fósturdóttir hennar roðnaði, sá hún, að nú hafði hún fundið ráð til þess, að tengja Eðmund sér nánara, án þess að segja honum hvernig í öllu lá. «Pað var leiðinlegt, góða mín,« svaraði frú Neumann, «mér lá einmitt svo mikið á þessu bréfi. Eg ætlaði að skrifa eftir þessum nýju kápuleggingum,» Um leið brosti hún mjög blíðlega framan í Eðmund. »Ressi herra getur ef til vill gefið okkur gott ráð í því efni?» Eðmund hneigði sig. «r*að mundi gleðja mig mjög, ef eg gæti hjálpað ykkur eitthvað með minni kunnáttu.« Rað glaðnaði yfir ungu stúlkunni. «Eg ætla að sækja bréfið.« «F*að er of ónæðissamt hérna í búðinni,» sagði frú Neumann. »Mætti eg biðja yður að koma með okkur inn í skrifstofuna?« Eðmund vissi ekki fyr til en hann var kom- inn inn fyrir dyratjöldinn og inn í mjög snotra skrifstofu. Skrifborðin þar voru útskorin, og stólarnir klæddir silkiflaueli; út við gluggann sat öldruð kona og var að skrifa reikninga, Hún leit ekki upp, þegar frú Neumann kom inn í skrifstofuna með dóttur sinni og unga manninum. Unga stúlkan settist niður við eitt skrif- borðið og sýndi Eðmundi helztu vafastafina í bréfinu frá París. Hann teygði sig út yfir stól sinn og reyndi að lesa bréfið yfir öxl henni. Frú Neumann stóð rétt hjá, krosslagði hend- urnar á brjóstinu, með tárin í augunum og horfði á þau til skiftis, Loksins komust þau í gegn um bréfið frá Malterre og frú Neumann og dóttir hennar þökkuðu Eðmund kærlega fyrir alla hjálpina. Síðan gekk hann út úr búðinni; þar hefði lí'ann feginn viljað vinna alla sína daga, þvf sú búð fanst honum taka öllum öðrum fram, einkum vegna þess, hvað frú Neumann var viðkunn- anleg kona. Regar hann kom heim til sín, fleygði hann sér niður í legubekkinn og fór að hugsa um þetta, sem við hafði borið. «Vel byrjar vera mín hér í Berlín,» sagði hann og hló, og þótt undarlegt væri, hugsaði hann 'þá meira um frú Neumann en um dótt- ur hennar. Hvað hann var frænku sinni þakklátur fyr- ir, að hún skyldi biðja hann þessa, og hvað hann langaði til þess, að hún bæði hann þess aftur! Þegar að hann fór, hafði frú Neumann sagt við hann hreint og beint, að sig langaði til að sjá hann aftur; en það er alvanalegt, að duglegar sölukonur segi það við viðskiftavini sína. Hann hélt, að það væri alveg ófært, að hann kæmi þangað aftur án þess að eiga eitt- hvert erindi eða þá að kaupa eitthvað, Eðmund skrifaði frænku sinni langt bréf og bað hana þess að síðustu, að gera sér viðvart, ef hana vanhagaði um meira af kniplingum og böndum, ef hún væri ánægð með það, sein hann hefði lceypt fyrir hana; sér væri mikil gleði að því, ef hann gæti gert henni einhvern greiða. Bréf þetta setti hann innan í böggul- inn, skrifaði utan á hann og ba.ð vinnukonuna hjá frú Heiser fyrir hann á pósthúsið. Svo fór hann út og ráfaði ofan í Friðriksgötu og var eiulægt að hugsa um laglegu stúlkuná í skraut- sölubúðinni. V. Formann ríkisráð var í bezta skapi. Hann gekk ánægður um gólf heima hjá sér og neri saman lófunum. Ef Klemm hefði séð til hús- bónda síns, mundi hann sjálfsagt hafa farið að tauta um það við sjálfan sig, að eitthvað ó- venju gleðilegt hefði komið fyrir hann, Og svo var Iíka. Óðara en Eðmund var kominn út úr búðinni hjá frú Neumann dag- inn áður, fór hún til þessa göfuga verndara

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.