Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Blaðsíða 18
258 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. fyrir þá upphæð. Gáðu að, 25 ceni eru ekki meira en einn fimti úr Shilling, og að hugsa sér að ferðast kring um jörðina fyrir það, slíkt yrði skrítið ferðalag! ha, ha, ha!« »Svo þú vilt ekki sleppa tilkalli til arfsins,« sagði dóttirin. Málafærslumaðurinn greip nú fram í fyrir ungfrúnni og segir: »Eg leyfi mér að vekja athygli yðar á því, ungfrú Muriyton, að ef faðir yðar uppfyllir eigi ákvæði erfða- skrárinnar, verður afleiðingin eigi einungis sú, að hann missir arfinn heldur missir herra Lava- rede hann líka. Ferð hans verður honum því aðeins að liði, að herra Murlyton hafi eftirlit með honum, en ef hann af frjálsum vilja hætí- ir við ferðina, fær faðir yðar auðvitað arfinn.« »Hvað segið þér, herra minn?« æpti Lava- rede, »að eg hætti við ferðina. Miljónunum rignir yfir mig af himnum, og þér haldið að eg muni ekki gera tilraun til þess að hand- sama þær. Skilyrði frænda nn'ns eru langt frá því, að vera svo erfið, að eigi megi fullnægja þeim. Rað er hægt, að ferðast um þvera og endilanga Parísarborg, án þess að eyða til þess einum eyri, og livað ætti að vera því til fyrir- stöðu, að eins mætti skrölta til Kína, eða Ame- ríku fyrir 25 cent? Ekki verð eg fenginn til þess að trúa öðru en að það sé hægt.« »Svo þér ætlið þá að reyna þetta,« sagði Englendingurinn kuldalega, »gott! Eg hefi ráð til þess að fylgja yður, og bankabók rnína hefi eg í förinni, svo að eg er reiðubúinn til þess að taka að mér eftirlitið. Eg mun ekki hafa augun af yður, en væntanlega gefist þér upp eftir tvo daga og þá verður þessi saga á enda,« »Við sjáum til,« sagði I.avarede ókvalráður, »eg legg út í það.« «Síðan sneri hann sér að málafærslumann- inum og bað liann að lána sér járnbrauta- ferðaáætlunina. Hann athugaði hana litla stund og sagði síðan. »Á morgun er 29. marz 1891. klukkan 9 fyrir hádegi fer lestin frá París til Bordeaux og nær í lestina, sem gengur til Pauillac, þaðan ganga eimskipin til Ameríku. Hr. Murlyton, í fyrramálið bíð eg yðar á Orleansstöðinni, þar á ferðin að byrja«. Englendingurin hneigði sig til samþykkis. Ungtrú Aurett brosti ánægjulega yfir festunni og hinum bersýnilega viljakrafti unga manns- ins. Hann ávarpaði málaflutningsmanninn enn einu sinni og sagði: »Eg á að hafa lokið ferð minni kring um jörðina á einu ári, er ekki svo?« «Jú svo segir erfðaskráin,« «Egverð þannig að vera komin aftur hingað á skrifstofu yðar 25. marz 1892 áður en lokað verður!« »já, herra Lavarede, í allra síðasta lagi.« »Eg er staðráðinn í að gjöra það.« Síðan kvaddi hann og fór. II. KAPÍTULI. Frd París til Bordeaux. Pegar Lavarede var kominn út úr skrif- stofunni, kveykti hann í vindli og fór að yfir- vega hvernig hann ætti að haga ferðum sínum. Hann var fastráðinn í því, að vinna til arfsins með því að fara þessa erfiðu ferð. Hann var í engum efa um að sér mundi lánast að leysa þetta hlutver'k af hendi, en eítir því, sem hann hugsaði meir um ferðalagið, sá hann þó fleiri og fleiri tálmanir, sem niundu verða á leið sinni. í þessum hugleiðingum reikaði hann fullan hálfan tíma um stræti Parísarborgar. Alt í einu kom honum eitthvað nýtt til hugar, sem hann fór að hlægja að með sjálfum sér. Hann greikk- aði sporið til skrifsíofu blaðsins, sem hann vann við, »Parísarbergmálið« hét það. Settist hann þegar við skrifstofuborðið og ritaði grein til næsta dags, var það skýr frásaga um erfðaskrá- na og alt innihald hennar. Nöfnum hlutaðeig- enda var breytt, en kunnugir gátu þó ráðið í hverjir áttu hlut að máli. Síðan gekk hann inn til gjaldkera blaðsins. Par bárust honum þær fregnir, sem raunar

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.