Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 19
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 259 komu honum alls eigi á óvart. Bovreuil gamli hafði verið þar með réttarins þjóna og fastsett öll þau ritlaun, sem hann átti inni og þau, sem hann átti að fá næsta mánuð. »Jæja þá,« sagði hann, »þetta er nú byrj- unin.« Síðan hélt hann heimleiðis. Pegar hann kom að strætisdyrunum tilkynti dyragæzlukonan madama Dubois, honum að þjónar réttarins hefðu einnig verið þar og tekið öll húsgögn hans fjárnámi í nafni Bovreuils. »Eltki nema það þó! F.n hvað mér stendur þetta hjartanlega á sama. Eghefi ekki þörf fyrir nokkur húsgögn úr þessu, því á morgun Iegg eg af stað til anr.ars heims.« »Ouð minn góður!« æpti madama Dubois »hvað ætlið þér að gjöra, herra Lavarede? Þér eruð þó ekki að hugsa um að fyrirfara yður. Reynið að taka þessu með stillingu. Rað koma vonandi betri tímar innan stundar,« »Verið þér rólegar, kona góð,« sagði Lava- rede hlæjandi, »j>essi annar heimur, sem eg ferðast til, er Ameríka. Eg þarf að fara þangað hl þess að ná í arf eftir frænda minn, ekki minna en 4 nriljónir.« »Drottinn minn, eg varð svo hrædd, herra Lavarede.« Lavarede var búinn að fá nóg að vita. Hann stökk upp í léttivagn, sem ók fram hjá og lét aka til Orleansstöðvanna. Hann steig af honum úti fyrir vörugeymsluhúsi einu miklu, þar sem geymdur var varningur, er sendast átti nieð lestunum. Lavarede þekkti einn af forstöðu- mönnunum þar, hafði stundum gefið honum aðgöngumiða að leikhúsunum, er honurn höfðu verið sendir, sem blaðamanni. Við þennan mann talaði hann afsíðis nokkrar mínútur, sfðan gengu þeir út í hliðarbygging eina, sem full var af pokum, tómum körfum, skrínum, kistlum °g kössum. Lavarede var í besta skapi, þegar hann kom aftur inn á skrifstofuna. Skrifaði hann nú tilvísunarbréf og afhenti það einum af rit- urunum. Ritarann rak í rogastans og formað- uritin gat várla varist hlátri. «Það er til Panama, er það rétt,* spurði skrifarinn. «Já« svaraði Lavarede, »til Panama, hrað- flutningsvarningur. Kassinn verður áreiðanlega að komast af stað í fyrramálið með hraðlest- inni, svo að hann nái í fyrsta eimskip, sem vestur fer.» »Verið óhræddir, kassinn skal verða sendur,« sagði skrifarinn. Til vonar og vara fór Lavarede samt aftur út í vörugeymsluhúsið og málaði með stórum stöfmn á kassann: Panama. Síðankvaddi hann vin sinn. forstjórann, sem altaf var hálfhlæjandi og sagði: »Petta er sannarlega skringilegt til- tæki, en eg er á glóðum um að brautarfélagið geri uppþot, þegar þetta kemst upp.« »Verið óhræddir, eg tek alla ábyrgðina á mig. Petta mun aldrei Ienda á yður, og þegar eg kem aftur, skulum við sannarlega hafa fjör- ugt kvöld í leikhúsinu.« »Hann ók síðan til veitingahússins til þess að fá sér miðdegisverð. Fór hann nú að telja peninga sína, og átti þá rúma fimtíu franka. Peim varð hann að eyða um kvöldið eða nótt- ina. Og jæja, einhvern tíma hafði honum ekki orðið skotaskuld úr því, að koma öðru eins í lóg á einu kvöldi. En til þess að slíkt skyldi ekki fyrirfarast, safnaði hann saman nokkrum kunningjum og bauð þeim upp á góðan miðdags- verð með nægu víni. Kvöldverðurinn fylgdi síðan á eftir með nægu kampavíni og öðru góðgæti og áfram var haldið fram á nótt meðan frankarnir entust, og á ferli var hann alla nótt- ina. Um morguninn átti hann eftir tvo franka. »Pað erágætt,« hugsaði hann 1 franki og 75 cent fyrir vagn til Orleansstöðvanna og 25 cent til þess að ferðastfyrir kring um jörðina. Eg liefi að vísu ekki sofið neitt í nótt, en nóg- ur verður svefntíminn, þegar komið er af stað,« Klukkan 8 um morguninn kom hann út á stöðvarnar, með 25 cent í Tasanum, sem hann hafði leyfi til að hafa með sér, sam- kvæmt erfðaskránni, en fljótlega hvarf hann út í vöruhúsið, þar sem stóri kassinn var, sem átti að fara til Paiiama. 33

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.