Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1907, Síða 22
262 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Bókmentir. Leggi var það, að vér íslendingar áttnm ekki til nema að eins eina skáldsögu frumritaða á voru máli: Piít og stúlku eftirjón Thorodd- sen. Löngu síðar kom Maður og kona út að honum látnum, og var hún ekki fullger sem kunnugt er. Báðar þcssar sögur eru gersamlega ritnar á þjóðlegum grundvelli, og kennir þar víða í stílnum meiri áhrifa af fornsagnastíl vor- um en af útlendum skáldskaparstíl, og fór vel. Málið var daglega málið, fegrað og prýtt með því sem enn er til af fornmálinu — og forn- málið er sannarlega enn með fullu lífi á vör- um þjóðarinnar, að minsta kosti margra karla og kerlinga, þegar þær fara að segja sögur — vér þurfum ekki annað en að líta ofan í þjóð- sögur Jóns heitins Arnasonar o. fl. til þess að fá oss færðan heim sanninn um það. Jón Mýr- dal ritaði sögur í eftirlíkingu við Pilt og stúlku, en langt stóðu þær að baki sögum Thor- oddsens, enda var hann maður ómentaður og voru þær góðra gjalda verðar, þegar þess er gætí. En þetta var svo lítið, að eigi getum vér talað um skáldsagnaritun á fslenzku fyrri en eftir 1880. Um 1880 kom breyting áþetta. Á svo sem 20 undanförnum árum hafði breyting mikil orðið í Norðurálfunni í stefnu skáldskaparins, og er nú almenttalið, að Frú Bovary, sagaeft- ir Oustav Flaubert, frakkneskan höfund, ágæt- an, geri þar upphaf og landamerki (1857). Ge- org Brandes flutti stefnu þessa, er þá var nefnd Realismi, inn á Norðurlönd um 1870, og gerð- ust flestir hinna yngri skálda meðal Dana og Norðmanna henni sinnandi, og Svíar komu þegar á eftir. Sumir hinna eldri skálda breyttu og um og slógust í förina. Pegar þeir Gestur Pálsson og Einar Hjörleifsson hittust í Kaup- mannahöfn 1881, gáfu þeir og nokkrir aðrir stúdentar út «Verðandi» 1, ár, 1883; var í henni sín sagan eftir hvorn þeirra, báðar samd- ar nreð mikilli list, ákefð og fjöri, og steyptar upp f nlot þéirra áf hitttim réálistiskti rithöf- undum á Norðurlöndum, er þá þóttu mestir og beztir. Mikið fanst mönnum til um bók þessa, og var talsvert um hana deilt fram og aftur, og var margt af því, sem þá var sagt, af litlum skilningi og enn minni kunnugleika á stefnu tímans. En svo er nú að jafaði vant að fara, þegar um eitthvað nýtt er að gera. En þó að kveri þessu væri vel tekið, kom Verðandi ekki oftar út, hvað sem valdið hefir, en stefn- an, sem hún vakti, dó ekki út; menn fóru að vera sér út um rit þeirra manna í Danmörku og Noregi, er mest þótti mark að; menn fóru að vakna til meðvitundar um það, að eins mætti rita «realistiskt > á Islandi og um íslenzkt sveita- líf eins og útlendingar gerðu um sínar þjóðir og þeirra líf og háttu. Gerðust þá ýmsir til að rita sögur, og helztir Þorgils Gjallandi og svo Einar Hjörleifsson og Guðmundur Friðjónsson síðar. Þá mátelja til þeirrar stefnu sögurjónasar Jónassonar. En svo er að sjá, sem það í hin- um útlenda stefnuskáldskap, er mest Ieitar eftir hinum dökkvari hliðum mannlífsins, hafi mest liaft áhrif á þá — þeir hafi bezt tekið eftir því og lagað sig eftir því. Kveður svo ramt að eftirlíkingunni, að í fyrstusögum Þorgils Gjall- anda er íslenzkunni svo misboðið að furðu gegnir, og setningalagið vægðarlaust lagað eftir setningalagi Norðmanna, Kjellands o. fl. og þó að það fari fullvel hjá þeim, fer það íslenzk- unni illa. Það verður eins og strigabæt- ur á ullarfötum. Síðan hefir Þorgils vanið sig alveg af því, og ritar nú ágætt mál víðast hvar. Sá hinna nýjari rithöfunda, sem mest lætur til sín taka nú síðustu árin, er Jón Trausti. Hann er enn þá ungur maður, en hefir nú á þrem síðustu árunum hrist fram úr erini sér mörg skáldrit: langt leikrit og kvæðasafn var komið áður, en nú hefir hann gefið út marg- ar stuttar sögur í Eimreiðinni, Skírni og Fann- ey, og svo tvær skáldsögur sérstakar: Höllu í fyrra og Lsysing í ár. Þetta er ekki lítili gróð- ur, ef það er ekki ofurgróður. Það þarf meira en lítinn andans auð til þess að geta þetta svö véí fári, og viiillá þó setn iðnáðarmaðtlr

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.