Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1908, Síða 24
22 NYJAR KVÖLDVÖKUR. ekki þekt Englendinga eða logið viljandi,« sagði lávarðurinn gremjulega. -'Rað gleður mig að eg hefi farið vilt í því, En það er kalt í nótt — viljið þér gefa mér leyfi til að fara inn og fá mér kápu?« »Já gjarnan, ef þér viljið lofa mér því, að koma aftur skjótt.« «Því lofa eg« sagði hún ogstóð upp; Hann gekk að dyrunum með henni og sagði: »Þér sjáið að eg ber meira traust til Skota en þér til Englendinga.« Hún horfði einkennilega og með hálfgerð- um hrygðarsvip á hann dálitla stund og svaraði: «Eg hefi líka heyrt, að það nafi eyðilagt margan mann að treysta á konuna.« Hún hvarf, og hann stóð einn eftir á vegg- svölunum, og braut heilann um þessi síðustu orð hennar, sem gerðu hann órólegan. Hún hafði ekki sagt, hvenær hún ætlaði að koma aftur, og ef hún kæmi nú ekki, hvern- ig ætt liann að finna hana í þessari stóru borg. Hann var einmitt að ávíta sjálfan sig fyrir vitleysuna, þegar dyrnar opnuðust og hún stóð frammi fyrir honum í síðri kápu. Það kom ánægjubros á varir hans, en á fallega andlit- inu hennar sást ekkert svar upp á það. Djúp- ur ótti hafði sett merki sitt á andlit hennar. Hún rétti honum höndina og sagði með nokk- urri geðshræringu: »Eg verð að kveðja yður, farið þann veg sem þér eruð komnir, og yfir- gefið borgina hið skjótasta.« Ungi maðurinn fór að hlæja. «F*ér gleym- ið líklega, fagra mær», sagði hann, »að við eigum að nokkru leyti í ófriði hvort við ann- að?» »Nei, það er einmitt það, sem eg hefi ekki gleymt. Eg sárbæni yður um að yfirgefa þessa örlagadæmdu borg, meðan tími er til. Borgin er ein af geymslustöðum Skotlands fyrir nýja efnið, sem kallast púður, og komu Englendinga bar svo bráðan að, að mest af því var skilið eftir í kjallaranum. Eg hefi nú kveikt í púður- þræðinum, og eftir fimm mínútur verður ekki annað eftir af borginni en öskuhrúga.« »En guð minn góður, ungfrú,« hrópaði lá- varðurirm, «geta Skotar engan mist af her- mönnum sínum, svo þeir þurfi að láta kven- mann vinna þetta verk?« »Það er nóg þörffyrir menn vora á orustu- vellinum, svo að eg tókst þetta starf á hend- ur. Þér komuð óboðinn hingað, og það er í sjálfu sér engin ástæða til að hlífa yður, úr því eg hlífi ekki sjálfri mér. Samt sem áður ætla eg að gefa yður líf, en þá verðið þér að fara héðan tafarlaust. »Komið þá með mér.« »Nei.« »Jæja, þáslekk eg í þræðinum». «Það getið þér ekki, því hann er á þeim stað, að þér finnið hann ekki. Nei, flýið, flý- ið, meðan tími er til.« »Eg get verið þrár eins og þér, og eg heiti því, að fara ekki héðan nema þér komið með mér.« »Gefið yður þá á vald mitt sem bandingja og látið mig ráða skilyrðunum. Gefið mér yðar enska æruorð upp á það, að þér sam- þykkið að eg slökkvi í þræðinum.» «Já, ungfrú. eg samþykki það — eg er band- ingi yðar«. Ungfrúin hvarf svo skyndilega, að það var eins og hún hefði sokkið niður í jörðina. Þeg- ar hún kom aftur, var hún lafmóð af hlaup- unum; hann stóð í þungu skapi og studdi höfðinu að grindunum. Hin stutta skozka nótt var á enda, og lampinn bar daufa birtu. — »Bandingi,» sagði hún eftir að hafa horft á hann um stund, »þau vægustu skilyrði, sem eg get sett, eru þau, að þér farið til manna yðar, og snúið með þeim heim aftur — eru skilyrðin má ske of hörð, að þér rjúfið orð yðar?« »Eg skal gera eins og þér skipið> sagði Iávarðurinn, án þess að Iíta upp. »Það lítur út fyrir að það séu vonbrigði fyrir yður.« «Framtíð mín er eyðilögð, og eyðilögð með smán. Þér höfðuð á réttu að standa, er þér sögðuð, að það gæti eyðilagt manninn að treysta konunni, og héðan af getið þér tilfært örlög mín því til sönnunar,«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.