Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Síða 16
14 NÝJAR KVÖLDVÖKUR söðlaði hest sinn og reið í áttina til Túbak og fór allgreitt. Hélt hann áfram unz hann mætti þeim félögum, og voru þeir allir ríðandi. Höfðu þer unnið fararskjóta sína af Indiönum. Fabían var dapur og fálátur aðvanda;þeir héldu áfram sem leið liggur til suðurs og töl- uðu fátt; Gayferos og Kanadarinn töluðu hljóð- skraf saman. Fabían varð því órólegri sem hann kom nær þessum stöðvum, sem endurminningar hans voru háðar. Hann taldi sjálfum sér og Bois- Róse trú um, að hann vildi hvergi fremur vera enn í eyðimörkinni með þeim félögum, og elskaði engan og ekkert nema hann. En Bois-Róse hélt því fram, að hann skyldi fyrst líta yfir allar þær stöðvar, er honum hefðu mest orðið við hug og hjarta bundnar: blett- inn í skóginum, þar sem þeir höfðu hitzt og þekzt, og svo jafnvel skarðið í múrnum, þar sem hann hefði gengið út, helsár bæði á lík- ama og sálu. Rað fór hroliur um Fabían, og hann hélt því fram að þess þyrfti ekki— það hefði engin áhrif á sig framar. Svo komu þeir á blett í skógarjaðrinum, örstuttan spöl frá hasíendunni og áðu þar. Pepe og Gayferos sofnuðu þegar, en Bois-Róse og Fabían vöktu; hvorugur gat sofið — endur- minningarnar hrúguðust inn á þá. »Eg væri vanþakklátur við guð, ef eg gæti sofið á þess- um stað, þar sem eg hefi fengið svo góðan vott um kærleíka hans. »Eg er á sömu skoðun« mælti Fabian. «Já, eg þakka guði fyrir þenna blett, og það sem þar gerðist. Lítt’á, hér eru leyfarn- ar af bálinu, sem við kveiktum — sviðnir eldi- brandar. Parna er tréð, sem eg sat upp við sælustu stundu æfi minnar. Og síðan hefi eg lifað alla daga sæla, þegar þú hefir verið hjá mér.« Og þá daga alla, sem þú átt eftirætla eg að vera hjá þér,« svaraði Fabían, «eg á þig og" engan annan að í veröldinni, eg skal aldrei skilja við þig.« Meðan þeir voru að tala um þetta fram og aftur, seig sól til viðar, Pepe og Gayferos vöknuðu við vestangustinn, sem fór að kjassa trjátoppana, og kveldkvak fuglanna í liminu. Reir átu kvöldmat, sem Gayferos hafði kom- ið með frá hasíendunni, og biðu svo um stund, kveiktu upp eld og bjuggust til að hýr- ast þarna um nóttina. Fabían vissi það vel, að Kanadarinn nmndi veslast upp, ef hann ætti að fara að lifa bæ- jarlífi, og vildi ekki kannast við að hann gæti við hann skilið. Stjörnurnar þokuðust áfram hægt og hægt og boðuðu að skamt væri til háttatíma. Tungl- ið skein á lofti, en dauft því að það var ekki nema hálft. Rá stóð Bois-Róse upp og sagði alvarlega og blítt: »Farðu nú, drengur minn, á þann stað. þar sem þú skildist síðast við stúlkuna, sem ef til vill elskaði þig, og legðu þar höndina á hjartað. Ef þú finnur ekki til þess, að það berjist hraðara, þá komdu aftur, því að þá hefir j)ú unnið sigur á liðna tímanum.« »Eg kem aftur, faðir minn,» svarað' Fab- ían fast og sorglega, «endurminningarnar eru eins og vindblærinn fyrir mig, hann fer fram hjá og stanzar ekki, og .lætur enga slóð eft- ir sig.* Hann gekk hægtíáttina. Kvöldsvalinn dró úr mollunni, sem lagði upp úrjörðinni. Roku- slæðingar lagði yfir landið. Hann gekk fyrst föstum fótum, en hægt. En þegar hann fór að sjá til múrsins milli þokubandanna, og sá skarðið, fóru fætur hans að gerast óstyrkvir. Hann fann að hann var að bíða ósigur, og hann varð hiæddur um það, — eða voru það etidurminningarnar, setn risu á móti honum eins og flóðalda? Rögnin var þung og djúp, og nóttin björt. Alt í einu hrökk hann saman. Hann sá hvíta og grannvaxna mynd standa í múrskarðinu. Hún var eins og álfar, sem svífa á skýjabólstr- unum í þjóðtrú sumra landa — eða þó líkust engli kærleikans. Svo sýndist honum vofan hverfa — en það var ekki annað en sjónvilling. Hún kom

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.