Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Blaðsíða 23
FORLAGAGLETNI 21 betta hvítir menn á ýmsum aldri, sumír skegg- lausir unglingar, en aðrir hvítir fyrir hærum. Allir voru þeir vel vopnaðir, djarfir og frekju- legir í framgöngu, og sýndi alt þeirra fram- ferði, að þeir voru vanir við að skipa og láta hlýða sér. Gamall svertingi, sem stóð fyrir beina, hafði nóg að gera að bera fram hiná heitu drykki, sem menn báðu um í sífellu, og hin unga kona veitingamannsins varð að koma til sög- unnar til þess að hjálpa til við framreiðsluna. Pessi sveit var í mjög æstu skapi, og Þjóð- verjinn var naumast kominn inn úr dyrunum fyr en gestgjafinn var dreginn líkt og fangi inn í gestastofuna og hann yfirheyrður þar eins og óbótamaður. Hann skalf á beinunum af hræðslu. Hann þóttist ekkert vita, og sagðist ekkert vita um neinn óaldarflokk, engir hefðu komið þar um kvöldið, nema einn hvítur mað- ur með þjóni sínum, og laug þannig alt hvað aftók. í-’jóðverjinn varð þess brátt áskynja að þessir menn voru áveiðum, þeim veiðum, sem þeir eflaust hafa haft mesta tilhneigingu til: mannaveiðum. Sá atburður hafði orðið fyrir nokkrum vikum, að ríkur jarðeignamaður þar í grendinni liafði verið myrtur, ásamt konu og barni. Sumt af þrælum hans og þjónustufólki hafði verið myrt, en sumt flúið, og féll eðlilega grunur á það um ódáðaverkið. Pó féll langtum meiri grunur á mann nokkurnMelazzo að nafni, sem var kynblendingur og sonur meiriháttar Mexikóbúa, sem hafði látið þenna launson sinn fá ágætt uppeldi. Þarna í veitingastofunni var mikið rælt um gripdeildir og grimd þessa voðalega manns, og hvernig hann hefði byrjað glæpabraut sína með því að myrða bróður sinn, sem var ein- asti erfingi að eignum föður hans, og hafði eigi annað til saka unnið en að slá til hans með svipu. Eftir bróðurmorðið hafðist hann við 1 óbygðum eða strjálbygðum'landsins eins og ublegumaður og var grunaður umjþátttökuí öllum ódáðaverkum þar um slóðir. En öll ofsókn gegn honum varð árangurslaus og hann bauð byrginn lögum og rétti þar í landi. Þetta veitti honum því léttara, sem hann var hraustur, snarráður og hafði óbilandi traust allra svert- ingja og blökkumanna þar í nágrenninu og auk þess meginþorra hins undirokaða almúga. Þessvegna höfðu nú bændahöfðingjar og efnamenn gert samtök til þess að handsama öfbeldismanniiin, sem þeim var farið að standa mikill beygur af. Slungnir njósnarar, sem þeir höfðu haft úti, höfðu sagt þeim, að á þessum stöðvum hefð- ist ræningjaforingi þessi við í tjöldum með sveit manna. Því var það, að þessi heldri menn voru komnir á ferð í æstum veiði- hug til þess að handsama þrjótinn og hengja hann umsvifalaust upp í eitthvert haldgott tré. í þetta sinn fór sem fyr, þeir komu ofseint til veitingahússins. Fuglinn var floginn og hreiðrið tómt og gat nú þrjóturinn hlegið að öllu þeirra fumi og ráðagerðum. Undarlegt var, að engum af þessum mönn- um datt í hug að spyrja Walter um, hverjir þar hefðu verið um kvöldið, og hann fann heldur enga ástæðu til að fræða þá um það óspurður, meðfram afhlífðvið veitingumann- inn, sem varist hafði allra frétta um það og hefði naumast sloppið heill á húfi, ef upp- víst hefði orðið, að hann væri að leyna ferð- um óaldarflolcksins. Þjóðverjanum var raunar boðið að vera með til mannaveiðanna, en hann kvaðst ófær til þess vegna svefnleysis og þreytu, og bað veitingastýruna um leyfi til að mega ganga til hvílu. Þetta veitti hún honum fús- lega, og leyndi sér ekki þakklæti hennar til hans fyrir að hafa þagað yfír gestaganginum þar fyr um kvöldið. Þegar herramennirnir höfðu sötrað úr glösum sínum, skunduðu þeir aftur út til hesta sinna, kveiktu blysin og riðu á brott með hávaða og glensi. Var sem steini væri létt af Þjóðverjanum er hann heyrði þá ríða brott, og honum fanst hann vera laus við þetta einkennilega og hættulega ævintýri, er hann varð fyrir þetta kvöld. [Framh.] -——

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.