Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Blaðsíða 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Blaðsíða 26
24 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ingu til þess að geta fengið það inn í sögu sína. En hann hefir gert það sem hann hefir getað, og þökk sé honum fyrir það, að hann reið á vaðið, þó að ekki sé ætíð riðið vökru. Eins og við er að bííast, er margt athugavert í bókinni og ekki allskostar rétt, og sumt enda gersamlega rangt, en fátt er það, sem neinu verulegu máli skiftir. Sumt er auðsjáanlega skakt fyrir slysalegar prentvillur, sem lýta bók- ina mjög, enda hefir höf. ekki getað lagt hönd að þeim leiðréttingum sjálfur. Dómar hans um menn og stefnur eru sumstaðar æði und- arlegir, og tæplega réttir, t. d. um Jón biskup Arason (II, 49) og því síður um Magnús Step- hensen (bls. 188 — 190). Rað er líkast því, sem hann hafi lesið Vigfús Erichsen um hann og haft hann fyrir aðalheimild. Og rétt geta þau ekki verið eða sönn, ummælin um Magnús Stephensen II, 192, að hann hafi viljað láta guðs nafn standa sem sjaldnast í sálmabók- inni, manninn, sem yrkir sálmana: »Hvað ilt og bágt sem mætir mér» og «Mín gæfa bygð á guðs náð er.» Og að búskapur Magnúsar væri í ólagi, getur hver að vísu sagt sem vill, en það vita allir að ekki er satt. Magnús var einn þessara fáu íslendinga, sem hafði gleipt í sig þekkingu þeirrar aldar í öllum hlutum, og vildi af alhuga gera sem flesta hluttakandi í henni. Hann sá hvað að var — hvað við vorum illa að okkur og langt á eftir — og hann lagði stórfé í það að reyna að bæta úr þessu, gefa út bækur og reyua að menta þjóð- iua; en jægar það gekk ekki með góðu og eins fljótt og hann vildi, þá reiddist hann og skammaði menn út fyrir myrkravináttu og Ijós- fælni, orti um þá ný sukkudokkakvæði og las þeim ómjúkan textann; en nú voru menn komnir það lengra, að þeir reiddust, í stað þess að þeir þögðu — bara þögðu, þegar Eggert Ólafsson var að ögra þeim. Rað er bágt, að engin góð æfisaga Magnúsar er enn til, því að með honum yrði sögð menningar- saga íslands um heilan mannsaldur. Eg hef tekið þetta fram sem dæmi þess, sem eg er ekki höf, samdóma um. En þó að marg't kunni þannig að vera við bókina að athuga, er luín samt allra góðra gjalda verð, og margur ungli'ngurinn ætti heldur að lesa hana en óvandað rómanarusl, sem nú er á boð- stólum. Og óskandi væri að bókin gengi svo út, að höf. sæi sér fært að gefa hana út að nýju og leiðrétta og endurbæta það sem áfátt er. Það er hvort ið er líklega ekki fyrst um sinn von á að fá sögu landsins með svipaðri stærð og þessi er, nem3 því að eins að Bogi Melsteð herði sig með síðara bindið af þáttum sínum, sem óskandi væri að hann gerði. JJ Skylda Hvað er skylda? Ast. Ast á því sem er eins og það er, óbreytt, óskreytt. Ast á heimsk- ingjanum, svo hann þýðist ráð þín, — spek- ingnum, svo þú geymir orð hans, — hraust- menninu, svo það eyði ekki afli sínu að ó- þörfu, — lítilmagnanum, svo hann þiggi af þér aðstoð. Elskaðu, svo þú getir annast aðra þannig, að þú særir þá ekki í stað þess að græða þá — svo þú getir þakkað án þess að þylja langa lofræðu. Elskaðu, svo þú sleppir engu tækifæri til að gera gott — svo þú notir ekkert tækifæri til þess að gera ilt. Astin er afleiðing af fágun hjartans. Sú fág- un ein megnar að auka þrótt og mæti — bæði sálar og líkama. Einn munað aðeins er óhætt að leyfa sér, án þess að leggja að veði lífsþróit og heilsu: þann, að búa öðrum sanna gleði og gæfu með breytni sinni. Mtðan dúfur lifa, munu haukar lifa. Og meðan haukarnir fljúga, munu þeir láta ginn- ast af háttsemi dúfnanna, — af því þeir eru dýr og líta aðeins á hið ytra. Oættu þín fyrir því sem sýnist — og ekki . er. Þá mun dýrið í þér draga sig í hlé og maðurinn koma betur í Ijós. Það verður þér að. gæfu. En hvað er þá gæfa? Ekki að hata — en elska. Ekki að vera elskaður —en að vekjaást. Karl Finnbogason þýddi lauslega. Prentsmiðja Björns Jónssonar 1911.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.