Nýjar kvöldvökur - 01.07.1938, Blaðsíða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1938, Blaðsíða 19
SÝ SLUMANN SDÆTURNAR 113 annað — nei, hverjir á aðra. Mér finnst það annars glettilega vitlaust að vera að ragast í þessháttar smámunum •— Aníta myndi hafa sagt bagatell —■ maður verð- ur þá aldrei búinn. Eins og t. d. núna. Ég lauk aldrei við kvöldið góða. Það var nú annars heldur enginn verulegur endir á því í þeim skilningi. Við drukkum kaffi — og fullmaktin og ég, við sátum á körfu- sófanum innst á svölunum og héldum hvort annaö í höndina, þegar enginn sá. Það var annars dálítið erfitt, því ég er svo klaufi með vinstri hendi. Aníta sá um frammistöðuna og sveif um eins og ofur- lítill engill, og nýi aðstoðarlæknirinn gat ekki af henni litið. Hann heitir annars líka Vang — en það gerir ekkert, því að fröken Vang heitir sennilega bráðum frú Ritter. Æ, hamingjan góða — því hafði ég al- veg gleymt. Hvað skyldi Malla frænka segja? Þarna stóð hún blíð og hnöttótt og þrýsti hönd fröken Vang, og munnurinn á henni gekk eins og piparmylla: „Þér verðið endilega að koma aftur, fröken Vang, það er svo gaman að sjá yður hérna — og smátelpurnar hafa svo gott af því — o. s. frv. Hann —■ það er full- maktin •—• leit á mig — og þó að hann brosti, fannst mér allt í einu allt verða svo tragiskt — er það ekki fínt orð? — að ég þoldi ekki lengur að standa þarna á bryggjunni. „Bless öllsömul“, sagði ég og hljóp af stað. Allir nema hann horfðu á mig steinhissa. En ég hljóp - alveg heim. Ég vildi ekki tala við pabba. Ég skil bara ekkert í, að ég skuli ekki hafa séð þetta jafnóðum. I fyrsta sinni, sem hún kom hingað, hurfu þau og fóru að skoða epla- trén, næsta sinni fóru þau að skoða hest- ana, þriðja sinni veit ég ekki, hvað það var — í dag var í fjórða sinn. — En þeg- ar ég hugsa mig um, þá hefir pabbi víst farið tíu sinnum út á Víkureyri síðustu þrjár vikurnar. Átta sinnum hefi ég sjálf farið með hann á „Frikk“, og tvisvar hafa þeir farið með bæði hann, skrifstofu- þjónninn og pabbi — og þá hefir alltaf verið' miðdegis-boð á læknissetrinu! H'eimskan •—• heimskan — heimskan þín! „Reynið að setja yður inn í —“. — Og Aníta sagði ekki orð, þegar ég sagði henni allt saman — ekki allt, annars. Ekki um hann. Hún horfði á mig. — Bara horfði. Hún sagði eitt orð. Hún sagði annars tvö. „Þú lýgur“, sagði hún. Ég ég veit, að hún meinti ekkert með því, því hún veit, að ég lýg aldrei. Svo sagði hún ekki meira fyrr en löngu, löngu seinna. Hún lá í rúminu með teppið langt upp yfir höfuð, og ég sat í gluggakistunni og prédikaði. „Úff, þú prédikar svo mikið“, sagið hún, „aldrei er friður, þar sem þú ert“.------ Svo þagnaði ég — því það var eitthvað við röddina. Ég fór að hugsa í staðinn. Ég hugsaði sterkara en nokkru sinni fyrr á ævi minni. Um pabba — um fröken Vang — um hann — og um Möllu frænku. Vesalings góða Malla frænka. — Æ, hvað eigum við annars að gera? Hérna getum við ekki verið, nein okkar. Þau skulu fá að losna við okkur. Við, sem er- um honum ekki fullnægjandi. Hann skal verða að velja, það skal hann fá. Við — okkur — Aníta og ég og Malla frænka í kaupbæti — eða þá hún. — Við skulum lofa 'honum að velja hana. Svo getur hann séð eftir því seinna. Hver getur búið til annað eins bíff og Malla frænka? Hver sungið eins og Anita? Hver spilar fiðlu eins og ég? Auðvitað margir. En enginn hér. Ekki hún. Gerðu svo vel, nú geturðu valið, herra sýslumaður! Veljið nú. — I eitt skifti fyrir öll. -— „Reyndu að skilja — reyndu að skilja —“. Ég kæri mig kollóttan um að „reyna að skilja“. Jæja, þá er ég búin að segja það. Eða skrija það. „Hilda litla“, sagði hann — þó að ég viti, 15

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.