Nýjar kvöldvökur - 01.07.1938, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1938, Blaðsíða 42
136 NÝJAR KVÖLDVÖKUR þig burt aftur!“ og hún byrgði ást sína vel inni í brjósti sér. Það var þungbært, og henni féll örðugt að neyðast til þessa og látast vera köld og kærulaus. Það var örðugt að strita á móti, þegar hún ein- mitt þráði að gefa sig alla takmarkalaust. Hún lét vindlingsstúfinn detta ofan í blautan korginn í kaffibollanum og slökkti þannig í honum, og sneri við blaði í tímaritinu. En allt í einu leit hún upp, og hún varð þess eigi vör, að tímaritið rann niður á gólfið. Rétt fyrir utan tjald- dyrnar heyrði hún hina sömu dimmu og blæþýðu baryton-rödd syngja Kashmere ástarljóðið, eins og hún hafði heyrt það sungið síðasta kvöldið í Biskra. Hún reis upp í dívankoddunum, hlustandi í ákafri eftirvæntingu og starði einkennilega ráða- laus á tjalddyrnar. „Pale hands I loved beside the Shali- mar. Where are you now? Who lies beneath your Spell?“ Röddin færðist nær, og hann kom inn og var enn að syngja — og gekk beint til hennar: „Pale hands pinktipped“, söng hann og nam staðar fyrir framan hana, tók utan um fingur hennar og lyfti þeim upp að vörum sér, en hún kippti að sér hendinni, áður en hann náði að kyssa hana. „Þú kannt ensku?“ sagði hún hvasst og horfði á hann gaumgæfilega. Hann fleygði sér hlæjandi niður á dí- vaninn við hliðina á henni. „Þó að ég syngi enskan söng?“ svaraði hann á frönsku. „La! La. Ég heyrði einu sinni ungan spænskan náunga, sem ekki kunni orð í frönsku utan við óperu-textann, syngja „Carmen“ í París. Hann þuldi það utanbókar eins og páfagaukur — eins og ég læri ensku söngvana þína“, bætti hann við og brosti. Hún horfði einkenilega á hann, meðan hann kveikti sér í vindling, og hrukkaði ennið hugsi. „Það varst þá þú, sem söngst fyrir utan hótelið í Biskra kvöldið góða?“ og þetta var frekar ákveðin fullyrðing en spurning. „Maður verður stundum ruglaður og trylltur, þegar full-máninn er hátt á lofti“, svaraði hann ertnislega. „Og það hefir þá líka verið þú, sem komst inn í svefnherbergi mitt og skiftir um skothylki í marghleypunni minni?“ Hann smeygði handleggnum létt utan um hana, og um leið og hann dró hana. að sér, sneri hann höfði hennar til sín, svo að hann gat litið í augu henni. „Heldurðu, að ég myndi leyfa nokkrum öðrum að fara inn í herbergi þitt að næt- urlagi? Ég — Arabi — þegar ég vildi. sjálfur fá þig?“ „Þú þóttist vera svo viss?“ Hann hló innibyrgðan hlátur, eins og: að hann skemmti sér kostulega yfir því, að nokkrum skyldi geta dottið í hug, að ásetningur hans og fyrirætlanir skyldu geta brugðist eða misheppnast. Ástríðan sem brann niðurbæld í augum hans, blossaði nú allt í einu upp og hann þrýsti henni að sér í algleymis ofsa. Díana strit- aði á móti og reyndi að losa sig úr faðml hans og sneri höfðinu undan. „Alltaf jafn köld?“ sagði hann í ávítun- arróm. „Kysstu mig ísprinssessa litla!“ Það var einmitt það, sem hana umfram allt langaði til, og henni var nærri því um megn að halda því áfram að sýna honum kuldalegt viðmót og hrinda honum frá sér. Hún brann af óstjórnlegri löngun til að segja honum, að hún elskaði hann, og með því í einni svipann kveða niður kvalir þær og kvíða, sem ætluðu að yfir- buga hana, og sjá svo, hverjar afleiðing- arnar yrðu. En vonarneisti sá, sem ennþá blundaði í brjósti hennar, gæddi haina hugrekki og batt tungu hennar, svo að hún kæfði hin heitu ástarorð, sem brunnu henni á vörum, og píndi sig til að líta á.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.