Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 18
12 KENNIMAÐUR N. Kv. það Ránnske of i seint. Svo bætti hún viö eftir litla þögn: — Ég vildi, að ég væri karlmaður; þá mundi ég fara og hjálpa henni Guðríði í Ási. Hann svaraði ekki, því að þetta síðasta var alltof vitlaust til þess að vera svara- vert. En svona var hún. Hjarta hennar rúmaði meðaumkun með öllu því, sem þjáðist og átti bágt, og þegar svo stóð á, gat henni dottið margt fjarstætt og ólík- indalegt í hug. Hún vatt sér fram úr rúminu .og fór að klæða sig. — Liggur þér nokkuð á? spurði maður hennar. — Ég get ekki legið lengur í rúminu, svaraði hún stutt. Ég verð að hafa eitt- hvað fyrir stafni. Hann lá kyrr um stund, eftir að hún var komin á fætur og fram í eldhús. Hann heyrði, að það glamraði óvenjulega hátt í öllu því, sem hún hafði hönd á. Svo fór hann alveg ósjálfrátt að hugsa um ekkj- una í Ási. Það væri sorglegt, ef lömbin hennar króknuðu úr kulda og vosbúð sökum þess, að það var enginn til þess að hjálpa henni við að koma þeim í hús. Já, það var hörmulegt, ef hún yrði fyrir miklum fjárskaða í viðbót við allt annað, sem hún hafði orðið að þola. Hann herti sig upp, stökk upp úr rúm- inu og gekk út að glugganum. Gólfið var svo kalt, að hann sveið í fæturna. Hríðin hamaðist á glugganum, svo að í fyrstu sá hann ekki neitt. Eftir langa mæðu tókst honum að sjá fyrir fjárhúsunum, sem næst voru. Úrfellið var geysimikið og stormurinn sömuleiðis. Snjórinn virtist þó ekki vera mikill ennþá, því að fram undir morgun hafði verið rigning, en smám saman kólnaði, svo að nú var það krapahríð, sem steyptist úr loftinu. Það var ekki fyrir konur og börn að fara út í slíkt veður, og nýfæddum lömbum mundi þáð vafaiaust verðá að fjortjóni, ef ekki væri hægt áð koma þeim í hús og hlýju hið bráðasta. — Vesalings ekkjan í Ási! Honum bar að messa í Bakkakirkju þennan dag, og vegna þess hve gott hafði verið undanfarið, hafði hann búið sig undir það, að einhverjir kæmu til messu í þetta sinn, en nú var útséð um það að þessu sinni. Þetta vár fjórða messufallið í röð í Bakkasókn. Hann leit á rúmið, sem beið hans volgt og notalegt ,en þó að hann f» ndi kulda- hrollinn læðast um sig, fékk hann sig ekki til þess að skríða und’T sængina. Hann tvísté um gólfið í hálfgerðu ráða- leysi nokkra stund, og í hug'hans fór að brjótast um ný hugsun, — sú hugsun, að hann ætti að fara fram í Ás og hjálpa ekkjunni. Sjálfur átti hann ekki neina sauðahjörð, sem hann þurfti. að koma í hús, og ekkert hafði hann fyrir stafni. Léttfeti hans var inni í húsi, því að hann hafði búizt við því að fara út að Bakka og messa þar, ef veðrið héldist óbreytt. Hann nam staðar á göngu sinni um gólfið og leit út í gluggann, sá krepju- flyksurnar renna niður rúðurnar og heyrði stormgnýinn á bænum. Hann krympaði sig við þá tilhugsun, að fara út í þetta veður. Hvað kom honum það ann- ars við, hvort lömb ekkjunnar í Ási lifðu eða dóu? Ekki bar honum nein skylda til þess að skipta sér af hennar högum. Það myndu áreiðanlega verða einhverjir aðr- ir til þess að hjálpa henni. Þetta var ekk- ert annað en heimska, að hann færi að leggja út í storminn og hríðina. Ekkjan hafði ekki heldur' tekið honúm svo vin- samlega í þau fáu skipti, sem hann hafði heimsótt hana, að mikið væri á sig leggj- andi hennar vegna. Hann settist á rúmstokkinn og ætlaði að leggja sig dálitla stund.'En hann gat ekki hrundið þessu burt úr huga sínum. Var það ekki skyldá hans að hjálpa upp

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.