Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 30

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 30
24 SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI N. Kv- 1881, fluttist Jón að Brú. Þorsteinn flutt- ist þá til Akureyrar, en Stefán sat eftir í Möðrudal. Lauk þar með yfirráðum Möðrudalsættar yfir jörðinni, en hefjast full yfirráð Brúarættar. Brúarætt. Á Brú á Jökuldal hafði búið frá því á 15. öld a. m. k., að því er menn bezt vita, ein og sama ætt. Forfaðir ættarinnar var Þorsteinn Jökull, sá er fyrr hefir verið getið. Verður sú búskaparsaga ekki rakin hér. Fyrir öskufallið 1875 bjó að Brú einn þeirra ættmenna, Einar Einarsson, góður bóndi og þróttmikill, eins og þeir ætt- menn allir eru taldir hafa verið. Öskufallið frá Dyngjufjallagosinu ann- an páskadag vorið 1875 varð miklum mun meira á Efra-Jökuldal heldur en í Möðru- dal. Lögðust jarðirnar á Efra-Dal nær í eyði nokkur árin næstu eftir öskufallið, en bændurnir fluttust með bú sín til annarra byggða, mest til Vopnafjarðar. Upp úr því hófust mestu Vesturheims- ferðirnar af Austurlandi, líklega með- fram fyrir það los, sem kom á staðfestu ýmissa bænda af völdum öskufallsins, en einnig vegna annárrar óáranar og hins mikla vesturfararhugar, sem um það leyti varð almennur á Austurlandi. Einar Einarsson frá Brú fluttist eftir öskufallið að Gestreiðarstöðum, eins af býlunum, sem í tíð Sigurðar Jónssonar hafði verið reist í hinu forna Höðrudals- landi austan fjallgarðanna. Þaðan lá svo leið þeirra feðga að Möðrudal, eins og sagt hefir verið. Steíán Einarsson og Arnfríður Sigurðardóttir 1880—1916. Með brottför Jóns Metúsalemssonar frá Möðrudal vorið 1881 hefjast að fuilu yfir- fáð Brúarættar yfir jörðinni. Stefán var þá 32 ára (f. 23. des. 1848), en Arnfríður ári yngri. Stefán hafði alizt upp á Brú til fullorð- insaldurs, en farið utan til Danmerkur haustið 1874, og dvaldi þar vetrarlangt við úrsmíði nám, en annað varð þó starf hans, þegar heim kom. Þó kom oft að liði þessi kunnátta hans, enda var hann hagur á hönd í fleiri efnum. Eftir fyrri konu sína og barn þeirra hafði Stefán eignazt hluta í jörðinni. Hann keypti nú brátt jörðina alla. Kaup- verðið mun hafa svarað til 6000 króna. Búþrif. Með bjarglegan stofn settust þau að búi í Möðrudal, Stefán og Arnfríður. Brátt efldust þau í búskapnum, og þegar nokkuð leið frá, stóð hann með miklum blóma, gripir margir og góð þrif 1 búi. Gripaflest mun hafa orðið um 700 sauð- fjár, 40—45 hross og allmargt nautgripa, m. a. margt geldneyta sum árin. Varð búþrifnaðurinn í tíð Stefáns líkur því,. sem bezt hafði verið á búskapartíma Möðrudalsættar. Stefán var harðgjör maður og fylginn sér, hugkvæmur og .hygginn búmaður, fjármaður ágætur. Má með sanni segja, að hann sem bóndi í Möðrudal væri rétt- ur maður á réttum stað. Dugnaður hans og harðfylgi og fjármennskuhæfileikar samsvöruðu erfiðleikum jarðarinnar af völdum staðhátta og kostum hennar. Hann þótti beita nokkuð hörðu við búfé sitt, og kostaði þannig sem minnstu til, en glöggskyggni hans og fjármennskuhæfi- leikar, samfara hinum ágætu landkostum, vörnuðu því að tjón hlytist af, enda ekki skortur á fóðri, ef með þurfti. Með þessu kom hann upp afburðagóðu þolsfé og þó afurðamiklu, og kostagóðu hrossakyni. Sóttu menn á þeim tímum hrúta til kyn- bóta og fjörmikla reiðhesta að Möðrudal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.