Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Qupperneq 12
8 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. sagðiat hafa staðið á hól skamt frá, en hversu sem hann hefði flýlt för sinni, hefði hann komið of seint til þess að bjarga lífi landa síns. En þegar skríllinn hefði séð hann koma, þusti hann í allar áttir og hvarf sýnum, svo að honum hafði ekki hepnast að ná í neinn af þeim til þess að hefna fjelaga síns. Allir ljetu í Ijóst heift sína og undrun. Ekki er ólíklegt, að slegið hefði í bardaga með þeim og bændunum, ef einhverjir þeirra hefðu orðið á vegi þeirra. Jeg hafði ekki tekið þátt í umræðum fjelaga minna, þótt frásagan hefði haft djúp áhrif á mig. Meðfram veginum, sem við fórum eftir, var þjett skógarkjarr og runnar, og var það góður felustaður fyrir þénna þorparalýð. Jeg hafði því stöðuga gát á runnunum, því að jeg bjóst við þá og þegar, að sjá grimdarlegt andlit einhvers þorparans gægjast út á milli greinanna. En jeg varð hvergi var við neitt slíkt, en jeg sá annað, sem ekki var minna ægilegt. Út á milli greina í einum runnanum sá jeg glampa á byssuhlaup. Jeg bjóst við að byssin væri þarna ekki ein, heldur væri þar líka hönd, sem styddi har.a og auga sem að miðaði henni. Jeg spratt af hestbaki og stölck eins og kólfi væri skotið inn í runtiann, og náði tökum á eigar.da byssunnar einmitt i sömu andránni og hann hleypti skotinu úr byssunni. Þessi trufl- un varð til þess, að skotið hitti ekki hjarta konungs, eins og því hafði verið ætlað, en flaug langt yfir höfði konungs. En skotið varð til þess, að konungur vaknaði upp af hugsun- um sínum og gaf samstundis skipun um, að stíga af hestunum og hefja leit að ódáðamann- inum í runnunum. En áður en þessi skipun gat orðið framkvæmd, var jeg kominn Ianga leið burtu frá runninum, þó ekki af frjáls- um vilja. Því að varla var skotið riðið af, fyr en jeg var gripinn af óteljandi höndum, meðan aðrir sviftu mig vopnum mínum og gerðu mjer ómögulegt að verjast. Fljótara en orð fá lýst var jeg vafinn reip- um, svo að jeg mátti mig hvergi hreyfa. Síð- an var jeg hafinn á loft og borinn burt með slíkum hraða, að hestur mundi eldci hafa farið hraðara. Stundum var jeg borinn hátt frá jörðu, stundum var jeg dreginn. En alt ver ferða- lagið hið óþægilegasta, því að trjágreinar fest- ust í fötum mínum og rifu mig í andlitið, eða að jeg fjekk högg af steinum i götunni. En áfram var haldið, og innan stundar vorum við komnir langt inn í skógarþyknið. Snöggvast var numið slaðar og sá jeg þá, að þessi flokk- ur voru bændur og búalið, konur og karlar. En aldrei hefi jeg sjeð jafn viðbjóðslegan hóp manna. Klæðnaður þeirra var óhreinn og rif- inn og daunillur, og andlit þeirra og öll per- sóna gaf til kynna hina ítrustu eymd, en um leið ótakmarkaða heift og ofstæki. Sumir karl- mannanna voru svo afskræmdir, að orð fá hvergi lýst þeim. Peir voru líkari árum en mönnum. Svo var haldið af stað aftur og með engu minni hraða. Loksins eftir langa stund stað- næmdist flokkurinn í rjóðri einu og slóð hús í miðju rjóðrinu, sennilega skógvarðarhús, sem reist hafði verið á friðartímunum. En hver fær lýst undrun minni og tilfinningum, þegar mjer varð litið á veista fjandmann minn, sem sióð í húsdyrunum: Úlrik Apfelbaum? Var það þá fyrirfram ákveðið, að við ættum stöðugt að hittast, afíur og aftur, án þess að geta gert hinum full skil? Rað, sem særði mig mest þetta augnablik, var það, hve hann varð glaður og ánægjuleg- ur, þegar hann kom auga á mig. Vafalaust munu þessir bændaræflar litla hugmynd hafa haft um þá innri gleði, sem gagntók þorpar- ann, þegar þeir færðu honum mig, og engan fanga mundi Úlrik Apfelbaum hafa kosið frem- ur en mig. (Framhald).

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.