Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Síða 16
12 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. og jeg sagði áðan, og það verður ilt fyrir mig, svo að jeg vil helst losna við það.*- sRað er skiljanlegt,* svaraði jeg. »Þá skiljið þjer líka, að þessi undirskrift er mjer fyrir miklu, þar sem jeg er aðalerfinginu. Og þar sem þjer að líkiudum fáið tækifæri til að tala um þetta við hann, — eða ef hann minnist á það sjálfur, þá vona jeg það, að þjer gerið það sem yður er unt til að fá hann til að ljúka við erfðaskrána — að rita nafn sitt undir hana. Þjer megið vera viss um, að jeg væri yður mjög þakklátur fyrir það.« Jeg Ijet mjer fátl til finnast um þakklæti hans. »En ef hann vill nú eigi gera þetta?« spurði jeg. »Það verður eigi hægt að ásaka yður fyrir það, — en annars vegar er jeg þess fullviss, að nokkur vel valin orð í þessa átt nægja til að láta hann taka þá ákvörðun að skrifa undir.« »Jeg get reynt þetta,« svaraði jeg. »Svo er eitt enn,« hjelt Mortimer áfram. »Það er eigi nægilegt, að hann skrifi undir; jeg þarf einnig að biðja yður að rita yðar nafn undir með vottorði frá yður sem Iækni, að hann hafi skrifað undir af frjálsum vilja og með fullu ráði.« »Jeg skal gera alt, sem skyldan býður mjer,« svaraði jeg. »Þökk fyrir.« Skömmu síðar fór Mortimer, auðsjáanlega í góðu skapi. Hann þóttist nú viss um sigur fyrst hann hefði unnið mig á sitt band. Viss um að hann hefði vafið mjer um fingur sinn, gekk hann sigri hrósandi brott. Rjett á eftir var drepið á herbergisdyr mínar. Var þar kominn brytinn með skilaboð frá markíanum um að hann vildi finna mig. »Hvað hefir hann sofið lengi?« spurði jeg. »Það er á að giska hálftími síðan hann vakn- aði. Og hann er í góðu skapi nú. Mig undrar það heldur eigi, eftir það sem þjer hafið sagt honum.« »Hvað var það, sem jeg hefi sagt honum?« spurði jeg og ljet sem jeg eigi vissi, hvað hann ætti við. »Hvað? — Ó, heira minn! Munið þjer það ekki Iengur?« Það komu tár í augu gamla mannsins. »Segið þjer það ekki . . . Þjer vitið meira að segja meira . . . Segið þjer alt, sem þjer vitið. Þjer vitið ef til viil alt.« »Alt hvað? Jeg skil yður ekki.« »Nei, góði herra. Þjer skuluð ekki reyna að kasta ryki í augu nrjer . . . Þegar þjer komuð hingað fyrst, fanst mjer óðara eins og einhver góður friðarandi hefði komið með yð- ur inn í þessa höll sorgar og kvala. Og svo það sem fram fór í nótt! Jeg sá að þjer vor- uð sjálfur eins hrærður og hans hágöfgi, þeg- ar þjer mintust á Þercy.« »Hafið þjer meðaumkvun roeð honum?« ’Jeg? — Jeg sem hefi borið hann í faðmi mínum — leikið við hann sem barn — elsku drenginn!« »En Jojer hafið einnig borið herra Mortimer í faðmi yðar.« »Já, því miður . . . En hver getur vitað, hvað framtíðin ber í skauti sínu . . . Þeir voru báðir synir sama föðurs. En komið þjer nú, herra minn, því að hans hágöfgi bíður yðar með óþolinmæði. Hann sagði við mig áðan: »Sæktu lækninn óðara og Mortimer er farinn af stað. Mjer finst jeg sje að vakna af vondum svefni . . . og jeg þarf að fá að tala við hann. Honum get jeg . . . honum verð jeg að segja alt, og það er svo mikið, sem jeg verð að segja honum«.« »En hvernig getur ástand hans hafa breyst svo skyndilega?« »Lítill neisti getur kveikt í heilli púðurtunnu. — Þjer komuð eftir öll þessi kvalaár, þessi ár myrkurs og einangrunar og sögðuð: »Hann elskar yður, hann biður fyrir yður.« Hann hefir aldrei viljað trúa því, þótt síra Graham eða jeg segðum honum það.« »Þekkið þjer síra Graham? Hvar er hann nú?« »Hvort jeg þekki hann! — En hvar er hann? Vitið þjer það ekki? Jeg hjelt að þjer viss- uð alt.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.