Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Side 19

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Side 19
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 15 Fræðakorn. (Fiamhaid). »Háttprúða stúlkan« heitir saga, sem birtist í IX. árg. N.Kv. Er höfundur hennar Louise May Alcott, amerísk skáldkona, fædd árið 1832, dá- in 1888. Faðir hennar var heimspekingurinn Amos Bronsson. L. M. Alcott var í mörg ár kenslukona og hjúkrunarkona. Hét fyrsta bók hennar »Hos- pitalsketcher* (Spítalamyndir), kom hún út 1863. Nokkru síðar kom út »Litt!e Women* og hóf hún með þeirri sögu langan skáldsagna- bálk fyrir æskulýðinn, er varð mjög vinsæll og frægur, og er »Háttprúða stúlkan* ein úr þeim flokki. Francois Coppé var franskur rithöfundur og Ijóðskáld. Hann er höfundur sögunnar »Hverj- um er um að kenna ?«, er birtist i XI. árg. N.Kv. Fr. Coppé er fæddur 1842. Orkti hann mik- ið af ljóðum, tilfinningaríkum og hljóinþrungn- um. Einnig skrifaði hann mörg leikrit, hetju- og sorgarleiki. Margar Ijómandi fagrar og vel skrifaðar sögur Mggja e'nnig eftir hann. Hann var eldheitur ættjarðarvinur og skrifaði allmik- ið um, að Frakkar ættu að fá aftur Elsass Lot- hringen. Hann barðist einnig aí hita miklum í móti Dreyfusi, sem hann áleit að skaðaði her- inn. Á seinni árum gerðist hann heitur kaíólsk- ur trúmaður og andaðist 1908. Bernhard Severin Ingemann er með þeim allra fremstu í skáldfylkingu Dana fyr og síðar, höf. sögunnar »Leynilegt vitni« í XIV. árg. N. Kv. Hann er fæddur 28. maí 1789 áTorkilds- strup-prestssetri á Falstur. Minningarnar frá h n- um sólríku æskudögum hans hafa streymt gegn utn öll verk hans. lngemann varð stúdent 1807. I fyrstu skrifum sínum er hanri dimmur og sorgþrunginn með óeðlilega ástríðu fyrir öllu leyndardómsríku og ægilegu. Hafði það einn- ig afarmikil áhrif á hann, að móðir hans og mörg systkini dóu um þessar mundir úr tær- ingu, og sami sjúkdómur heltók hann, svo að tv sýnt var um líf hans. Fyrsta bók hans kom ut 1811. — Þessi óeðlilegi ímyndunarsjúki skáld- skapur hans ber þó ótvíræðan vott um snill- ■nginn, hið hreimfagra mál hans og öfluga ^ugarflug. Fyrstu bækur Ingemanns voru Ijóð. Par næst^ skrifaði hann um langt skeið aðeins leikrit. Á einu ári komu út t. d. 6 leikrit. Af þeim er óefað mest varið í »Undrabarnið Rein- ald«. 1817 kom út hið fagra æfintýri: »De Underjordiske* (Neðanjarðarbúar). Er það fyrsta rilverk hans í óbundnu máli, þ. e. a. s. af þeim stærri. Kemur þar fyrst frarn hin heillandi írá- sagnarlist, sem honum var gefin. Árið 1818 fékk Ingemann ríkisstyrk til utanfarar, ferðaðist um Pýskaland, Frakkland og ítah'u. Lengst af var hann í Rómaborg. Pegar hann kom heim, var honum veitt lekt- orsembætíi í danskri málfræði og bókmentum. Hann var nú orðinn hraustari, bæði á sál og líkama, og gifti sig æsku-unnustu sinni, Lucie Mand x. Höfðu þau verið trúlofuð í 10 ár. Tók hann nú að lesa fornsögurnar og vegna áhrifa frá andlega risamenninu Cirundtvig, fékk hann löngun til að skrifa um hinar fornfrægu hetjur. Skrifaði hann nú afarmikið af söguleg- um skáldverkum í bundnu og óbundnu máli, utðu þær bækur afarvinsælar og eru enn, eink- um meðal æskulýðsins. Ljóðaflokkur hans, »Ho!geir danske®, er undurfagur. En hans feg- ursta, og ef til hið fullkomnasla listaverk á danskri tungu, eru hinir ódauðlegu »Morgun- og kvöldsöngvar« hans, þó að finnist stærri aridleg risasmíði og aðrir hafi kafað lengra í ráðgátur tilverunnar. En yfir söngva þessa and- ar hinni einlægu barnatrú hans á almætti og algæsku guðs. Ingemann skrifaði mikið af æfintýrum, ríkum af töfrandi hugarflugi og frásagnarlist. Síðustu verk hans er æfisaga hans og yf rlit yfir rit- slöif hans. Hann andaðist 24 febr. 1862. Alexander Sergejwitch Puschkin er víð- frægt rússneskt skáld. Er hann talinn einn af öndvegisskáldum Rússa og jafnvel settur á bekk með skáldkonungnum Tolstoj, sem er eitlhvert mesta andlegt ofurmenni jarðarinnar að fornu og nýju. Puschkin er fæddur 1799. Liggja eftir hann risavaxiri r tstörf, þótt hann yiði eigi nema 37 ára gamall. a dögum Alexandeis 1. var hann rekinn úr höfuðborginni sakir nokkurra ber- orðra k/æða, er hann hafði ort. Var honum skipað að búa á jarðeignum sínum og mátti eigi fara út fyrir landaniörk þeirra. En er Nik- ulás 1. kom til valda, tók hann Puschkin í þjón- ust sína og gerði hann að sagnaritara rikis:ns. Ritaði Puschkin þá meðal annars sögu Pjeiurs m;kla. Verk hans hafa verið þýdd á flest tungu- mál mentuðu þjóðanna. í Rússlandi eiga þau afarmiklum vinsældum að íagna. Puschkin fjell i einvígi 1837. Háði hann ein- vígið við mann nokkurn, er vingott átti við konu hans.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.