Nýjar kvöldvökur - 01.05.1925, Qupperneq 11

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1925, Qupperneq 11
NYJAR KVÖLDVÖKUR. 73 Pjetur Simple. Eftir kaptein Marryat. (Framh). Er hjer var komið, varð hann að hætta við söguna. Og nú kom fyrir atvik er mig sjálf- an snerti. »Skip framundan á stjórnborða!* kallaði varð- bergsmgðurinn. »Gott er það,« mælti yfirstýrimaður. »0’Brian! Hvar er herra O’Brian!* »Er það jeg, sem þjer kallið á, herra?« spurði O’Brian, sem búinn var að koma sjer svo vel fyrir innan í kaðalhring, að hann var ekki eins skjótur á fætur, eins og átt hefði að vera. »Já, herra.c »Gangið fram á og lítið eftir því, hvaða skip þetta muni vera!« »Svo skal vera, herra,« sagði O’Brian. Nú sneri yfirstýrimaður sjer að mjer og mælti: »Hlaupið eftir nætur-glasinu1) mínu, herra Simple.« »Já herra,* svaraði jeg. Enga hugmynd hafði jeg þó um það, hvað »næturglas« þýddi, annað en það, sem beint lá í orðunum; þóttist jeg samt vita það, að einmitt á þessum tíma, var þjónninn oft vanur að færa honum fult glas af rommblöndu. »Gætið þess, að brjóta það ekki, herra Simple,« bætti hann við. »Nú, já, já! Pá er það rommblönduglasið, sem hann vill fá!« hugsaði jeg. Jeg flýtti mjer nið- ur til brytans og bað hann um eitt glas af rommblöndu handa herra Doball. Brytinn þaut á fætur á nærskyrtunni einni fata og blandaði f glasið í snatri og rjetti mjer. Bar ’) Nælur-glas = night-glass á ensku, sem þýddi næturkíkir. En merking orðsins er í raun og veru »næturglas«, og er þarna orðaleikur í enskunni, sem ekki næst á íslensku. En væri orðið þýtt náttkíkir, eins og rjett væri, yrði misskilningur herra Simple óhugsanlegur, og þessi skemtilegi kafli að engu. Þýð. jeg það svo með mestu varkárni upp á skut- þiljur. Meðan jeg var í þessum útvegum, hafði herra Doball kallað kapteininn á þiljur upp, og O’Brian hafði kallað á næstráðanda. Voru þeir því báðir á skutþiljunum hjá þeim O’Brian og Doball, er jeg kom með romtnblönduna. Heyrði jeg þá að Doball segir: »Jeg sendi heria Simple niður eftir »næturglasinu« mínu, en hann er búinn að vera svo lengi, að jeg er hræddur um, að hann hafi gert einhverja vitleysu, — þetta er hálfgerður au!abárður.« »Nei, það er hann ekki,« svaraði næstráðandi einmitt um leið og jeg steig upp á skutþilj- urnar. — »Nei, heimskur er hann ekki.« »Nei, nei, getur vel verið,« svaraði yfirstýri- maður, — »nú, þarna kemur hann loksins. Hví voruð þjer svona lengi? Hvar er »nætur- glasið« mitt?« »Pað er nú hjerna, herra,« svarði jeg og rjetti honum fleytifullan bikarinn. »Jeg bað brytann að hafa það vel sterkt.« Kapteinninn og næstráðandi fóru að brosa og gekk kapteinninn afsíðis til þess að leyra hlátrinum, en næstráðandi varð eftir. Herra Doball varð fokvondur. .Jeg sagði þetfa,« mælti hann, »að drengurinn væri mesti þorskur!« »Rá verð jeg að vera þar á alt öðru máli, herra Doball,* svaraði næstráðandi. »Þvert á móti hefir hann í þelta sinn hitt naglann á höfuðið.« Gekk svo herra Falkon til kapteinsins og gengu þeir báðir hlæjandi leiðar sinnar. »Setjið glasið þarna á akkerisvinduna,* sagði herra Doball við mig í gremjuróm. »F*jer skuluð við tækifæri fá þá rcfsingu, er þjer hafið til unnið!« Jeg var alveg steinhissa á þessu öllu saman og botnaði ekki í neinu. Vissi jeg síst f hverju 10

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.