Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 3

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 3
NYJAR KVÖLDYÖKUR Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Ritstjóri : Friörik Ásmundsson Brekkan. XXI. árg. Akureyri, Desember 1928. 12. hefti. Ú skelfur hin blaðrúna björk á bálköstum norrœnna þjóða, — stofnar sviðna og reykir rísa áir rástum slokknandi glóða. — Því bót er að bakast um kveld við baðstofueld, er hvítnar þekjan við nœtur-nœðing og náttlangt á glugganum ýlustrá hljóða. En — fátœkleg vœri sá vist á vetrarkveldunum þarna, ef Ijómaði ekki l minni manna í myrkrinu jólastjarna. En börnin vita það víst og vœna það síst, að syndugum mönnum sje jrelsarí fœddur, í fjárjötu liggi ná konungur barna. Sjá nökkvann, sem Norðri ber á niðdimmum heimskauta dröfnum! Hann Gólfstrauminn forðast og seglhans svífa í sortann á ystu höfnum. Við Dumbshafsins dýpstu sund hann dokar um stund. — Þá hljóðna brimin er liafþökin nálgast um höfin og þokast að miðum og lögnum. Þá þrengist við baðstofubál, þar báa ná heimamenn saman, því stofan er köld og göngin gisin og gustar þar inn að framan. Þar róma ná rökkrin löng af rímnasöng, mansöngvar kveðnir, er rokkarnir raula — og reynt að gleyma við skemtun og gaman. Ná komið er jólakveld að kœta, lækna og hugga, og stjarnan í austri ár skýjaskili skygnist um snœþakinn glugga. Ná tendrum við tólgarljós um torfgöng og fjós, því hvergi í bœnum má blettur finnast blakkur af ryki nje hulinn í skugga. Þótt vetur sje grimmur og grár jiví getum við risið undir, ef boðskap englanna bóndinn les og býður svo góðar stundir. Oss daprar ei dauði nje sorg í Davíðsborg. Oss syndurum fœðist þar frelsari' í nótt, sem fœrir oss huggun á allar lundir. 23

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.