Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 8
182 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ketli — hann vantar nú reyndar bæði haus og hala, svo eg býst varla við, að aðiir mundu þekkja svipinn! Á mörgum heimilum er það þó húsmóð- irin sjálf, sem klæðist búningi »Lúzíu« og færir börnum sínum, bónda og öðru heim- ilisfólki kaffi í rúmið. Hefir hún enga »bakara« með sér, en það gerir ekkert ti!- Börnunnm er það nóg, ef aðeins »Lúzía« kemur með öll Ijósin og stjörnuna á höfð- inu. »Lúzíudagurinn« er einnig stórhátíð fyrir skólabörnin, sem þá halda kennurum sín- um og hvert öðru veizlu í skólanum. Pegar Lúzíumessa er liðin, er ekki langt þangað til »ídýfudagurinn« (dopparadagen) kemur, en svo nefnum vér aðfangadag jóla. — Og sú vesalings húsmóðir, sem í öllu vill halda fast við gamlar siðvenjur, veit varla sitt rjúkandi ráð sökum annríkis: Nú verður að sjóða jólasultuna og búa til jóla- bjúgun, sem eiga að vera úr því bezta svínakjöti, sem fáanlegt er, blandað bygg- eða hrísgrjónum. Pá verður að sjóða heilt svínshöfuð og jólaskankana (reykt svíns- læri), undirbúa »lútfiskinn« (hert langa, upp- bleytt í kalkvatni og soðin), baka »vört- brauðið« (brauð, þar sem öl er haft í deig- ið í sfaðinn fyrir vatn eða mjólk), »jóla- kusa« (julkusar, einskonar hveitibollur) og fjölda margar tegundir af ýmsum kökum, sem eru alveg sérstakar fyrir jólin; og nú verður líka að hugsa um jólatréð og »jóla- kerfið* (knippi af óþreskfu korni, sem er hengt á staur eða í tré handa fuglunum) — og að endingu mega jólag jafirnar ómögulega gleymast. Á öllum heimilum, sem gömlum siðum vilja fylgja, eta menn miðdegisverð í eld- húsinu á aðfangadaginn. — Á miðju borði stendur afar-stórt fat og á því hvílir nú svínshöfuðið sjóðheitt upp úr pottinum með epli í munninum, og í hring utan um það er lagt bjúga all-mikið. Kartöflur eru reiddar fram á öðru fati, En aðal-áhuginn beinist nú fyrst um sinn að soðpottinum, þar sem alt flotið syndir ofan á brennheitu soðinu. Hver og einn tekur sér nú brauð- sneið og dýfir henni í soðið (þar af kemur nafn dagsins), tekur hana upp aftur með gaflinum og leggur hana á diskinn hjá sér. Petta endurtekur sig eins oft og hver vill. Svo er skorið af svínshöfðinu og etið með brauðinu. Par sem margt fólk er í heimili og mörg börn, verður oft þröngt við pott- inn, en öllum kemur þó saman — og jóla- ölið, sem drukkið er með matnum, spillir heldur ekki samkomulaginu. Klukkan 4 e. h. byrja kirkjuklukkurnar að hringja, og kl. 5 ganga menn í kirkju til jólabænar. Þegar heim kemur er drukkið kaffi, og svo er kveikt á jólatrénu. Ef það eru börn á heimilinu, dulklæðir faðir þeirra eða einhver af vinum fjölskyldunnar sig og kemur inn sem »jó!ahafur« (julbock) eða »jólaálfur« (jultomte) með allar jólagjafirnar í poka á bakinu. Og er séihver hefir feng- ið sína gjöf, og menn hafa skemt sér við tréð um stund, er sælgætið borið inn, og á mörgum heimilum er það siður enn að skamta hverjum einurn, sem viðstaddur er, svo nefndan »jólahaug«. Pegar eg var barn, hafði hver »jólahaugur« margt að geyma, meðal annars »Lúzíukött«, »jólakusa«, safr- ankranz, piparkökuhjarta og piparköku- mann og altaf skál fulla af hnetum og ýmsum tegundum brjóstsykurs, sem var búinn til heima fyrir jólin. Alt kvöldið skemta bæði fullorðnir og börn sér með jólaleikjum, með að dansa kring um tréð o. s. frv. Þegar menn eru búnir að fá nægju sína af sælgæíinu, kemur kvöldmáltíðin og telj- um vér hana veizlumáltíð: P/íarmað kerti brennur á borðinu og í öllum sljökum eru ljós alt í kring. — »Lútfiskurinn« er vor þjóðlegi jólaréttur og verður hann auðvitað að vera á borðum. Öðrum mundi nú ef til vill ekki finnast til um hann, en með

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.