Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Blaðsíða 9
NYJAR KVÖLDVÖKUR 183 hráskrældum kartöílum og þykkri rjóma- og smjörsósu finst okkur hann nú góður. — Annar réltur, sem ætíð verður að vera með, er hnausþykkur hrísgrjónagrautur með kan- el og sykri. Meðal bænda er það ennþá siður, að hafa dúkað borð öll jólin. Á miðju borði stendur brennivínsflaska og kanna full af góðu, heimabrugguðu jóiaöli og hringinn í kring allskonar jólamatur. Állir gestir, sem að garði bera, verða að eta og drekka, og húsbóndinn gætir þess vandlega, að hver gestur geri skyldu sína í því efni, svo að hann »beri ekki jólin út úr húsinu*. Á jóladaginn eru menn heima. Pað þykir ekki viðeigandi, að heimsækja neinn þann dag, menn fara því ekkert nema í kiikju, en þangað fer líka kirkjurækið fólk tvisvar eða þrisvar. Morgunmessan — jóla- óttan kölluð — er haldin snemma morguns, kl. 6—7; hámessan er kl. 10 og venjulega er síðdegismessa líka. Annan dag jóla hefjast svo jólaveizlurnar fyrir alvöru, og þaðan í frá eru einlæg há- tíða- og veizluhöld þangað til tuttugasta jóladag — Knútsdag — þá er jólatréð rúið, og þá eta menn upp það, sem eftir kann að vera af jólasælgætinu. Stefáns- eða Staífans reið, sem er ein- kennilegur og æfaforn siður, heldur sér enn að nokkru leyti sumstaðar til sveita að morgni annars jóladags, sem einnig er Stefánsmessa. — Snemma morguns ríða ungir menn út klæddir síðum, hvítum skyrt- um. Peir nefnast »Stefáns- (Staffans) dreng- ir«. Áður fyr meir héldu þeir kappreiðar úti á hinum frosnu ökrum í myrkrinu, nú mun því hætf, en þeir fara milli húsa og syngja »Stefánssönginn«, með ángurblíðu þjóðlagi, úti fyrir dyrunum í myrkrinu. Söngurinn byrjar með þessum orðum: ,,Staffan var en stalle-drang“. Helgisögn liggur að baki söngsins, sem segir, að St. Stefán hafi verið hestasveinn hjá Heró- des konungi. Varð hann því verndardýr- lingur hestanna. Upprunalega hefir þetta verið gert til þess að hestarnir skyldu þríf- ast betur. — Pegar »Stefánsdrengirnir« hafa sungið sönginn á enda — hann er tólf er- indi — er þeim boðið inn og fá þeir góð- gerðir — fyrrum var brennivínið þá ekki altaf sparað sem skyldi. — Prettándakvöld ganga hinir svo nefndu »Stjörnudrengir« húsa á milli og syngja. Má þar sjá »vitringana frá austurlöndum*, »Heródes«, »hermenn«, »böðul«, »Mára- lands konung« o. s. frv., í miðjum hópn- um gengur »Júdas«, er hann sverfur í fram- an, svartklæddur og tötralegur, gengur hann með peningapyngju í hendi og veit'ar henni óspart; hringinn í kring um hann og á eftir honum ganga hvítklæddir »Sljörnu- drengir« með stjörnup’ýdda stafi í höndum og syngja, en á meðan læfur »Júdas« ýms- um skoplegum látum. »Stjörnusöngvarnir« eru margir og sumir þeirra mjög fallegir — að Iokum syngja þeir eilthvað spaugilegt í þakklæliskyni fyrir það, sem »Júdasi« hefir áskotnast í pyngjuna....... Eins og gefur að skilja, væri hægt að halda áfram mikið Iengur og segja frá mörgum fleiri siðum, sem heyra jólunum til meðal Svía, bæði í borgum og til sveita. — Petta, sem hér hefir verið sagt, er aðeins lítið ágrip af því almennasta, og verður það að nægja.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.