Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 16
190 NYJAR KVÖLDVÖKUR ræða — og ekkert tækifærisljóð — einfald- an mikilleika orða'og tilfinninga, sem eigi fæðast í bijóstum hversdagsskálda. Eg hefi nú eins ýlarlega og mér var unt í stuttu máli, reynt að skýra frá aðdrag- anda þessa kvæðis — hefi reynt að benda á hin ytri drög f lífi skáldsins á þessu tímabili, þau diög, sem hlutu að móta sál hans, huga og tilfinningar, þegar kvæðið varð til, og vildi nú að síðustu gera tilraun til að athuga kvæðið sjálft, eins og mér virðist það vera, borið saman við þjóðsöngva frænd- þjóðanna á Norðurlöndum. Danska þjóðsöngnum, »Der er et yndigt Land« eftir Öhlenschlager, getum vjer þó alveg slept. Hann er svo ólíkur, að allur samanburður er til ónýtis, þó undariegt megi virðast, þar sem hann er náskyldur, ef ekki hreint og beint fyrirmynd fyrir ýms- um af vorum ættjarðarkvæðum — og ekki öllum þeim Iélegustu — sem dæmi mætti nefna: »Ó, fögur er vor fósturjörð« o. fl. Þegar maður tekur finska þjóðsönginn, »Vfirt land, várt land« eftir J. L. Runeberg (sem varð fyrirmynd Björnsons, þegar hann kvað þjóðsöng Norðmanna), og athugar hann, er það einkennilegt, að annar eins trúmaður og Runeberg var, ekki hefir neitt í honum guðstrúarlegs eðlis, en dýrkunin á landinu sjálfu verður einskonar guðsdýrk- un; — í söng Matthíasar er landið ekkert því að það ísland, sem nefnist, er þjóðin — og þjóðin er ekkert — jú — »Eitt eilífðar smáblóm* frammi fyrir því e i- 1 í f a, fyrir s k a p a r a sínum og f o r s j ó n íþúsund ár. — Runeberg sýnir landið — bendir á það frá sjer numinn af fögn- uði og hrifningu eins og ástfanginn ungl- ingur: »Och híif, och hiir lir detta land — v&rt öga ser det hitr o. s. frv. — Matthías fer með alla þjóðina upp í hæðirnar, upp á Sinai-fjall hugsjóna sinna, fellur fram og tilbiður — tilbiður frá kyni til kyns. — Þetta er háleit einfeldni og svo sterk, að maður næstum stendur á öndinni. — Runeberg endar með að heimta frelsið — »och högre klinga skali en g;1ng vár fosterllindska sáng« — þegar frelsið er unnið. Matthías nefnir ekki frelsi — eitter nauðsynlegt — það eru hærri hugsjónir til en stjórnmála- frelsi: sVer gróandi þjóðlíf með þver'randi tár —sem þroskast á Guðsríkisbraut«. — Hér er frelsið — hið hæsta frelsi. — Frelsiskrafa Rune- bergs verður lítið í samanburði við þetta. En oss stendur fyrir hugskotssjónum sá Matthías, sem sumarið eftir flýði frá stjórn- málaþrasinu og grét í hrauninu við Þing- völl. Matthías var að öllum líkindum andlega skyldari Björnson en Runeberg, og það er margt í þjóðhátíðarsöngnum, sem minnir á Björnson. En hér er hann þó á hærri hæð- um, í víðari himinbláma en Björnson í sín- sínum þjóðsöng, »Ja vi elsker dette landet« — Björnson áminnir þjóðina um að þakka Guði fyrir, að hann hafi varðveitt landið fyrir hana: »Norske mand í hus og hytte — lak din store Gud« o. s. frv. — Matt- hías er öll þjóðin, sem þakkar og lofsyng- ur. — í öðru ættjarðarkvæði — einhverju því bezfa, sem nokkurntíma hefir ve'ið kveð- ið — »Der ligger et land mot den evige sne« — lætur Björnson Noreg — hina gömlu móður — fylgja æskumanninum til kirkjunnar. — Matthías gerir alt að musteri Drottins, forsjónar íslands í þúsund ár; og sjálfur er hann presturinn — æðsti goði — sem hátíðlega skríður fram undir hvelfdum bogum og leggur hina dýrustu fórn — »brennandi, brennandi sál« á alt- atið. — Björnson sjálfur verður eins og fátæklegur og hversdagslegur hjá þessum einfalda hátíðleika. Og ef vér nú að síðustu tökum hinn yngsta, og að því er mér virðist, fegursta af þjóðsöngvum Norðurlanda með, »Sverige, Sverige, Sverige fosterland« eftir Verner v. Heidenstam, þá verðum vér ef til vill að kannast við, að Matthías skorti nokkuð í

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.