Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 17
nYjar kvöldvökur.
mikilleik háleitrar eint'eldni. En í einu er
hann meiri — í Irúnaðartraustinu. Hjá Hei-
denstam er hið trúarlega aðeins þetta, að
feðurnir sofa undir hellubjargi kirkjunnar. —
Pað er á móti eldi Matthíasar eins og trú-
arjátning Sigríðar stórráðu á goð feðranna
móti almáttugum Ouði Ólafs konungs.
Nú hefi eg þá reynt að lýsa þjóðhátíðar-
söng Matthíasar í samræmi við sjálfan hann
og í samjöfnuði við þjóðsöngva frændþjóð-
anna, — Eg veit, að mér naumast hefir tek-
ist það eftir þeirri hugsun, sem fyrir mér
vakti. — Eg hefi reynt að sýna fram á yfir-
1Ö1
burðina, þar sem þeir finnast — gallana hefi
eg Iátið Iiggja á milli hluta, ef til vill finn-
ast þeir líka — eg veit það ekki. — Gallar
finnast yfir höfuð þar sem þeirra er leitað —
einnig í kveðskap þjóðskáldanna. — En eins
og eg tók fram áðan: Eftir Matthías Joch-
umsson erum vér rétt bornir til arfs og
skulda íslendingar!
Fáir hafa auðgað menningu vora sem
hann, þess vegna minnumst vér hans í dag,
eins og niðjar vorir og munu minnast hans,
meðan íslenzk tunga er töluð.
Fríörik Ásmundsson Brekkan.
EGILL SKALLAGRÍMSSON.
EFTIR GU8TAF FRÖDING.
(BROT).
I.
Egill í Eldaskálanuni.
»EgiIl þokaðu »Ertu til gagns?
þér frá hlóðum Geturðu eldað?
Skallagrímsson Er klæki þín nóg
í skúma-skotið. til ketil-seyða?
Veröld eg veit vera yngri »Hver er geta þín
en þú ert nú. gamli þulur?
— Þokaðu Egill! Hrumur, hrasandi
»Átt þú afl að hlóðum skjögrar þú að orna
enn svo mikið elli þinni.
að þú ketil Ilt er öldnum
á krók hengir? að undri verða!
Egill þokaðu — þarna mun eg »Hvar er hin íorna
setja sái frægð þín, Egill?
og soð-keröld. Hvar eru gull-öx