Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 18
nyjar kvöldvökur 102 er þú vanst á skálda-stigum, á stigum kappa? Hvar er nú herfrægð og heiður skáldsins? »Erum griðkonur, og griðkonuverk er að elda, er að spinna! Egill þokaðu, þú til einskis fær, ert öðrum að fótakefli!« Spinna þýjar, en þjóta rokkar! Oft er kátt þar ketill sýður. Glamur griðkvenna glepur Egil. — Hrakinn er hann að hurðarbaki. Þokar Egill ennþá lengra burtu frá glaum og griðkna háði. Egill áttræður — ennþá gildur — lágur, lotinn, loðinn fauskur. • Egill þokar, þokar Egill út í skotið yzt við dyrnar. Kvenna kalsi karl ei verst: ungum konum er að háði: »Pú framdir ódáð Egill forðum. Gramur varstu í garði konungs. Á það að ristast í rúnum á stein — bautastein Egils — meðal afreka? »Hvort var það afrek, þá inn þú komst í Eiríks höll við Humru strendur og hræddur kvaðst þér Höfuðlausn? Telst það einnig til afreka? »Til eru dældir nógu djúpar öldnum ver að ættar-stapa* Höfðu sumir hug til helfarar — hlupu í gjár og gistu Óðinn. »Aðeins Egill í eldaskála situr hrumur með hrokknar kinnar, lotinn, lýítur, lítill Finni, elli-örvasa og auk þess blindur! »Hvort er það Egill, að á nóttum bæri þíns föður faðir úlfsham? Hærra hirðmönnum hann um daga sat í öndvegi öllum leiður. »Ert þú Egill úlfa-ættar? Eða er finnblóð í þig runnið? Er úlfúð þín

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.