Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 19

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Qupperneq 19
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 193 ætfarfylgja? Ertu ei fláttskapa fullur jafnan?« Pröng er í stofu. Stofuleikir, alskyns gaman er þar framið: Bráður bendir á blindan Egil piltur úr sæti: »Sjáið Finnannl* Margir æpa: »Æ, við sjáum! Finni, Finni, Finni er hann!« — Egils andlit yglist, glottir, — hálft í auðmýkt — haturs-glotti. Þjóta rokkar í reykjarskála. Kvenna-glamur og gamanleikir: Börnin bekkjast við blindan þul, stúlkur hæða háran Egil. Verður Agli til varna fátt, lætur hrekjast í horn að vanda. Egill þokar, þokar Egill út í skotið yzt við dyrnar. — Egill ygldur eitthvað tautar, en orðum karls enginn hlýðir: »Marga vegu veltist Iífið: Ódáða-verk, angur-sorgir. — Munu menn margs um dæma, en að lokum öllu gleyma. »Afrek önnur Egill tamdi. Egill orti önnur önnur kvæði. »Beitti eg viti á Vermalandi, mundi annars illa leikinn. Greiddi eg gjöld, sem gjalda átti, borinn svikum og sverðum stunginn. »Agli varð sár sona-dauði: orti í sorgum eðla drápu. — Var og voldug víst sú drápa, er hættan skóp mér »Höfuðlausn«. »Pað fékk Eiríks eyra heyra. En Egils ferð enginn hefti. »Háð var þó lofið Lúfu syni. Og Egill hló, er hírðmenn Eiríks hlýddu hendingum »Höfuðlausnar« allir albúnir að Agli vega.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.