Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Page 20

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Page 20
194 NYJAR KVÖLDVÖKUR »Iðran illgerða. Angur-sorgir .... Ei eg þrái þrúðvang himins. Ei er Agli um Æsi hvíta, — hræðist Ijóma hvítra Ása. >Til Heljar fara, fá þar pínu, agg og háð illra vætta? — Ó nei, Egill ekki heldur geði fúsu fer til Heljar. »Eitt veit Egill öllum betur: Egill rennir eigi sköpum. »Vegir, vegir voru gengnir, götur margar misjafnlegar. Þrammar þungt þulur gráhár, en fæti léttum fetar ungur. >EgiII fetaði fús á götu, leiðir réttar og rangar stundum. lr. Hvað cr og var? Jötunblóð blandað blóði Finna, er það í Egils ættir runnið? Hræðsla, hugprýði, hæsta göfgi, — Rétt í röngu — rétt og falskt — Hver er hugprúður? Hver er ragur?« Egill þagnar. Egill þokar út í horn að hurðarbaki. Pjóta rokkar í reykjarskála, barnahróp og húskvenna. Glamur griðkna glepur Egil. — Pokar Egill út í skotið. Spyr í hæðni húskona: »Hver eldar Egils dögurð? Eg spyr og spinn, spinn í sokka; gott mun þykja þurfamanni!« Situr í skoti Skallagrímsson Egill kendur af Kveldúlfs ælt. Prumir þegjandi, þokar sér lengra burtu frá glaum og glamri kvenna. lestir, lymska, lævi og svik, alt hið illa, alt hið góða er í Egils æðum blandað:

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.