Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1928, Síða 21
NYJAR KVÖLDVÖKUR. Vana og Ása og allra dýra blóð mun ólga í Egils hjarta. Hver sameinar sundrað, tvístrað blóð í barmi, beinum, sinum, III. Kista Egi Lævi hyggst Egill oft að beita, því kraftar öldungs engan kúga. — Egill á kistu eina forna. Egill einn saman um það veit. Egils fé felst í kistu, peningar blóðgir blóði keyptir. Höggum hörðum, heift og drápum Egils auðæfi eru fengin. Skálda-laun: Léttum fingrum Egill hörpu hefir slegið. Kviður hann kvað, kvæði göfug, vísur vel slægar: vann sér fé. Veit þó enginn utan Egill hvað í hirzlu hans er fólgið. — Búa á botni beztu kvæði, skáldsins hinztu hjartastunur? 195 heila og hjarta, hið helga og bjarta, og hið óhelga eitur- svarta? Egill spyr. Enginn svarar. Hvað er og var? — Efi — sorgir . . . Geymdi ef til vill Egill kvæði, drápur dýrt kveðnar djúpt í kistu? Drápur ortar í ógn og trylling, eða í hamförum heiftar-reiði; ort í angri, ort í sorgum, hinztu hljóð harma Egils. Djarfar hendingar himinbygðar eins og hallir, sem Egill gisti — háar, hvelfdar — á herförum við Njörfasund og í Normandíi, Ódauðleg orð Egils hendi haglega rist á rúnakefli. Leíur ljósfælið sem leðurblöðkur. Skáldyrði djúp og djörf sem fálkar. Vissi það enginn Egils frænda. Enn í dag enginn veit það . . ,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.