Trú - 01.10.1904, Síða 3
T R Ú .
59
verða umskipti á högum þjóðarinnar, því nú Hður að því, að
hún mætir því, sem hún hefur ekki þurft að kvíða, síðan hún
tók kristna trú. Haltu trú þinni, og þá ertu hólpin". Eg
þóttist biðja hann að bléssa mig, manninn minn og börnin
mín, en hann leit til okkar blíðleg^; við urðum glöð og ánægð
við það; þótti mér þá sem við ættum eftir að sofna þar sem
við vorum. Hin 8 ljós, sem með mér fylgdust, kvöddu mig
svo fögrum kveðjum, að mér falla þær ekki úr minni, en get
þó ekki haft þær orðréttar eftir til opinberunar.
Að þessu búnu hófst svo yfirnáttúrlega dýrðlegur söng-
ur, að eg varð máttvana, og fannst mér að eg sofna og
dreyma, að eg væri vakandi, og þótti mér eg líta út um
gaflgluggann heima hjá mér og sjá sólina í nónstað, en hún
var sem blóðhnöttur, eins var himininn, jörðin og sjórinn.
Nú þótti mér eg vakna, og var eg mjög máttvana, en
þegar eg komst til meðvitundar, var koininn morgun. — Aftur
dreymdi mig draum þennan nóttina milli 23. og 24. maí sama
ár, og var hann þá að öllu leyti eins.
Um leið og eg inni af hendi skyldu mína um opinberun
draums þessa, svo vel sem mér er unnt, fel eg velvirðugum
lesara hans ófullkomið orðfæri mitt.
Elisabet Þorleifsdóttir.
Til athugunar.
Af því eg hefi komizt að því, að mörgum mun líka vel
draumur sá, sem prentaður hefir verið í blaðinu, þá ætla eg
að raðast í að láta prenta hann sérstakan handa hverjum sem
vill, fyrir lítið verð.
Saiuuel 0. Jolmson.