Trú - 01.05.1905, Page 5
T R Ú.
21
Hver sem útvegar 9 áskrifendur að
þessum árgangi af ,Trú‘ og stendur skil á and-
virðinu frá þeim i tæka tíð, fær 10. eintakið
í sölulaun.
hreinu og skæru í Guðs augum. Því svo stendur skrifað:
„Ef þeir réttlátu naumast frelsast, hvað mun þá verða urn
hina“. Varaðu þig því, kæri lesari, og vertu undirbúinn.
Nýr vegur til að gefa.
Einn heiðarlegur maður, vel þekktur af sínu mikla
rikidæmi var eitt sinn spurður að, hve mikinn hiut af hans
ríkidæmi hann væri vanur að gefa í Drottins þarfir. Hann
sagði: „Eg veit ekki. Eg brúka eins mikið eins og kona,
sem þykir svo indælt að brúka vel sæta rabarbaraskorpusteik.
Hún lét eins mikinn sykur og hana langaði til. en þegar hún
var búin að því, þá lét hún aftur augun, og lét svo fullan hnefa
sinn í viðbót af sykri. Eg gef alt hvað mig langar til að gefa
og svo tek eg handfylli mína og bæti því við, án þess að
telja, hve mikið þar er.
Gefur þú hið sama, kæri lesari ? Ef svo er, þá láttu það
ekki lenda á röngum stað, því hið góða mun Drottinn endur-
gjalda, annaðhvort í þessu lífi eða í upprisu hinna réttlátu.
Til Guðs barna.
Við verðum að fórnfæra okkar gamla manni til þess að
geta orðið algerlega helguð, en við verðum að fórnfæra okk-
ar nýja manni, nfl. okkur sjálfum, til að fá aðrar sálir helg-
aðar, ef réttilega er unnið að verkinu.