Trú - 01.05.1905, Side 6
22
T R Ú.
Gyðingurinn.
Saga.
Fyrir mörgum árun) síðan kom útlendingur inn í kirkju
eina í Anieríku um það bil sem prédikunin var að byrja,
hann settist á stól nærri prestinum og hlustaði með eftirtekt
á ræðuna. Presturinn tók eftir því, að maður þessi þurkaði
oft tár af augum sér á meðan á prédikuninni stóð. Þegar
guðsþjónustan var á enda, gekk presturinn til þessa nianns,
heilsaði honum vingjarnlega og mælti: „Ef eg þekki rétt, þá
eruð þér Gyðingur". Utlendingurinn kvað svo vera. Prest-
urinn sagði þá ennfremur: „Má ég spyria: hvað hefir kom-
ið yður til að hlusta á kristilega prédikun, þar sem þér eruð
þó gyðingatrúarmaður?" „Það fáið þér að heyra, ef þér
viljið hlusta á lítið ágrip af æfisögu minni", svaraði maður-
inn, og er presturinn hafði látið hann skilja, að sér væri það
kært, sagði þessi útlendingur það, sem hér á eftir kemur.
Hann hafði, ekki alls fyrir löngu, mist konu sína, og
síðan ásamt dóttur sinni flutt sig til Ameríku og sett sig
þar niður í blómlegum landshluta við fljótið Ohió. Dóttir
hans, sem var 17 ára gömul, hafði með frómlyndi sínu og
hjartagæzku áunnið sér með réttu að heita elskuvert barn,
•enda var hún sú eina af mönnum, sem faðir hennar setti alt
sitt traust til, hann hafði líka lagt alt í sölurnar til þess, að
hún mætti verða sem bezt upplýst, og lét meðal annars kenna
henni að lesa og tala mörg tungumál; en framar öllu öðru
hafði hann látið sér vera umhugað um að innræta henni trú-
arbrögð feðra sinna, og gera henni þau sem hjartgrónust,
nefnilega Gyðingatrúna. En heilsa þessarar ungu stúlku tók
snemma að veiklast, kraftar hennar þverruðu, svo að hún
varð að leggjast í rúmið. Margir læknar vóru sóttir til
hennar, og þeir gerðu alt sitt bezta til að bæta heilsu henn-
ar, en alt virtist árangurslaust. Það varð með degi hverjum
augljósara, að veiki hennar mundi draga hana til dauða.
Föður hennar langaði oft til að tala um dauðann við hana,
en fyrir gráti og geðshræringum gat hann naumast komið
upp einu orði. Einn dag hafði hann gengið frá henni út í
garðinn, sem lá við húsið og ráfaði þar um grátandi. Að
lítilli stundu liðinni sendi hin dauðsjúka dóttir boð eftir hon-