Trú - 01.05.1905, Síða 7
T R Ú .
23
um. Hann óttaðist, að rlóttir sín nií mundi vilja kveðja sig
hinstu kveðju, því hann vissi, að henni, eigi síður en honum,
var það Ijóst, að skilnaðarstundin var í nánd. Það var þvl
með mestu áreynzlu og hjartasorg, að hann gat gengið inn
aftur að banasæng sinnar elskulegu dóttur, og þyngst lá hon-
um það á hjarta, að hann var ekki viss um, að þau mundu fá
aftur að sjást í eilífðinni. Þegar hann kom inn að rúmi dótt-
ur sinnar, settist hún upp til hálfs, greip um hönd honum og
sagði í mjög hjartnæmum rómi: „Faðir minn, elskar þú
mig?" „Mitt kæra barn", svaraði hann, „þú veizt, að ég elska
þig meira en alt annað í heiminum". Dóttirin sputði hann
þá í annað sinn: „Faðir minn, er það áreiðanlegt, elskar þú
mig?" „Hvers vegna spyrðu mig svo itarlega um einmitt þetta
atriði, barnið mitt", svaraði faðirinn; „hefi ég ekki í sann-
leika sýnt þér, hve heitt ég ann þér?" Hin dauðvona dóttir
spurði hann þá enn einu sinni: „Faðir rninn, elskar þú mig
þá sannarlega?" Þegar nú faðirinn engu gat svarað framar,
bætti hún við þessum orðum: „Eg veit að þú elskar mig,
þú hefir ávalt verið mér góður og ástríkur faðir, og ég elska
þig líka af öllu mínu hjarta. Viltu því uppfylla eina ósk
mína og löngun, einustu og síðustu bæn þinnar deyjandi
dóttur. Viltu veita mér hana?" „Kæra barnið mitt", svar-
aði faðir hennar, „Hvað sem það kostar mig, þá skal bæn
þín veitast þér“. Með veikum burðum reis hin dauðvona
dóttir upp í rúmi sínu, leit mjög alvörugefin á föður sinn og
mælti: „Kæri faðir, eg bið þig, talaðu aldrei framar illa um
Jesús frá Nazaret". Föðurnum varð orðfall af undrun yfir
þessari óvæntu bæn. Dóttirin hélt þá áfram og talaði með
djúpri viðkvæmni: „Eg veit einungis alt of lítið um Jesús,
því menn hafa elckert sagt mér um hann, en svo mikið veit
eg þó, að hann er minn frelsari, og í veikindum mínum hefi
eg lært að þekkja hann sem minn frelsara. Eg trúi því að
hann geri mig sáluhólpna, þrátt fyrir það, þó eg hafi seint
lært að þekkja hann og elska. Eg veit, að þegar eg dey,
þá fæ eg að koma til hans, og vera honum sameinuð um
eilífð. Gleym nú ekki þessari bæn minni, elsku faðir minn.
Utvegaðu þér Nýatestamentið, því í gegnum það getur þú
lært að þelckja Jesús sem þinn sama frelsara. Og nú, þegar
■ég er dáin, þá gefðu honum hjarta þitt og þá innilegu elsku,
>