Skuggsjáin - 01.01.1916, Side 6
4
inn veit nú vissu sína og sameinar þráð-
endana mjög gætilega og bíður svo átekta.
Alt í einu heyrist dynkur mikill og hefst
upp dimmgrár strókur úr vatninu, er því
næst klofnar í sundur og tvístrast, en á
íljótinu lljóta ótötlegar skinntægjur og kjöt-
þjóttur.
Skálðskapur og reikningslist.
Hið heimsfræga enska skáld Alfred Ten-
nyson fékk einhverju sinni svohljóðandi
bréf frá mikilsmetnum tölvitringi, Bagby að
nafni:
»Eg hefi fundið þessa villu í ljóðum yð-
ar: Á hverju augnabliki deyr maður og
fæðist annar. Eg þarf naumast að taka
það fram, að ef þessi útreikningur væri
réttur, þá stæði mannfjöldinn á jörðunni
ávalt í stað. Eg skal því leyfa mér að fara
fram á það við yður, að þér látið leiðrétla
þessa röngu staðhæfingu í næstu útgáfu af
ljóðum yðar á þá leið, að raunar deyi einn
maður á hverju augnabliki, en aftur fæðisl
lVio. Ef allrar nákvæmni er gætt, þá er
talan 1,167«.
Fáum er kunnug sagan af tölvitringnum
í Berlín. Vinur hans einn, er var sönglist-