Skuggsjáin - 01.01.1916, Page 10

Skuggsjáin - 01.01.1916, Page 10
8 heita niátti. Hinn harðúðugi hershöfðingi hótaði þeira ölln illu og sór þess eið, að hann mundi ekki láta stein yfir steini standa ef sér væru ekki færðir 200 skjóttir hestar og allir úr sama stóði. Vóru þorpsbúar nú í miklum vanda staddir og vissu ekki hvað lil bragðs skyldi taka, en þá datt þeim ráð í hug. Reiðprik þau, sem krakkar þeirra léku sér að, vóru einmitt mislit og kölluð »Skjónar« og stóð ekki á löngu að útvega 200 slika reiðskjóta. Vóru þeir allir gerðir úr sama trénu, telgdir og lilaðir og því næst riðu krakkarnir þeim til herbúða hers- höfðingjans. Hershöfðinginn viknaði þegar hann leit þennan hóp og heyrði bænarákall barnanna og hét því náðarsamlega, að hann skyldi þyrma heimilum þeirra. Er svo sagt, að herramaður sá, sem þá átti Molschleben herragarð, hafi slofnað til hátíðar þessarar, sem börnin hlakka til enn í dag, til minn- ingar um atburðinn. Á hátið þessari fara drengir um alt þorp- ið með hljóðfærasveit í broddi fylkingar, en þorpið er alt skreytt grænu laufi. Yngri drengirnir eru allir »ríðandi« á hinum forn- frægu Skjónum sínum, en eldri drengirnir hafa hjálm og spjót að vopnum. Eru fánar bornir fyrir þessari glæsilegu fylkingu, en hún heimsækir alla heldri menn bæjarins,

x

Skuggsjáin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skuggsjáin
https://timarit.is/publication/517

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.