Skuggsjáin - 01.01.1916, Qupperneq 16
14
löngu gleypt í sig, hefði hann ekki verið
ln æddur um, að sér kynni að verða bumb-
ult á eftir. — Þjóð? — Nei — nei! Ein-
hver grár og geispandi óskapnaður, sem
andar ekki öðru frá sér en köfnunarefni
og kveljandi leiðiudum og endar vissulega
með því að hengja sjálfan sig í kámugum
kaðalspolta«.
Leikinn gimsteinaþjófur einn keypti sér
oft ýmsa smámuni í gimsteinabúð nokkurri
og var þá vanur að dást að dýrgripum
þeim, sem lágu þar til sýnis i glerkössun-
um á búðarborðinu. Einhverju sinni bað
hann leyfis að fá að skoða men nokkurt al-
sell demöntum, sem honum hafði orðið
tíðrætt um. Hinn kurteisi gimsleínasali tók
þegar menið úr glugganum og rétti honum
það. Kaupunautur hældi því á hvert reipi
og fékk honum það aftur og hefði gimsteina-
salann fráleitt grunað nokkurn hlut ef hann
hefði ekki rekið augun í það, að nú var
merkið á meninu Ijósbrúnt á lit. Með því að
allir hlutir í búð hans báru hvítl merki,
þá grunaði hann þegar, að þetla væri ekki
einleikið og var komu maður tekinn hönd-